Stafrænar endurgerðir

Tímarit.is
Dagblöð og tímarit frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi
Handrit.is
Samskrá íslenskra handrita með mynduðum eintökum
Bækur.is
Stafræn endurgerð íslenskra bóka
Íslandskort.is
Íslandskort og ágrip af kortasögu
Hljóðsafn
Stafræn afrit af tónlist og viðtöl

Gagnasöfn

Skemman
Safn námsritgerða og rannsóknarita
Rafhlaðan
Rafrænt varðveislusafn
Vefsafnið
Íslenskir vefir frá 1996 til dagsins í dag
Leitir.is
Samleit í gagnasöfnum og samskrá bókasafna
Finna tímarit
SFX-leit að tímaritum í áskrift safnsins
Hvar.is
Landsaðgangur að tímarita- og gagnasöfnum
Þýðingar úr íslensku
Leit að þýðingum úr íslensku í Leitir.is

Safn KSS 2017/4 - „Lengi býr að fyrstu gerð. Tónlistar-arfur frá Kirkjuhvoli.“ Sýning 2015.

Tilvísunarkóði

IcReLIH KSS 2017/4

Titill

„Lengi býr að fyrstu gerð. Tónlistar-arfur frá Kirkjuhvoli.“ Sýning 2015.

Dagsetning(ar)

Þrep lýsingar

Safn

Umfang og efnisform

16 einingar. Ein askja í yfirstærð.

Nafn skjalamyndara

Kirstín Katrín Pétursdóttir Guðjohnsen (1850-1940)

Lífshlaup og æviatriði

Fædd 6. maí 1850, dáin 28. september 1940. Húsmóðir. Eiginmaður: Lárus Halldórsson alþingismaður. giftust 6. maí 1876.
Foreldrar: Pétur Guðjohnsen alþingismaður og kona hans Guðrún Sigríður Lauritzdóttir Guðjohnsen, fædd Knudsen.
Börn: Sigríður (1877), Halldór (1878), Guðrún (1880), Halldór (1881), Pétur (1882), Valgerður (1885), Gunnþórunn (1890).

Nafn skjalamyndara

Valgerður Lárusdóttir Briem (f. 1885) (1885-1924)

Lífshlaup og æviatriði

Fædd: 12. okt. 1885 á Grund í Eskifirði, d. 26. apríl 1924 á Akranesi.
For.: Lárus Halldórsson alþm. og Kirstín Pétursdóttir Guðjohnsen, húsmóðir.
Stundaði tónlistarnám í Det Kgl. Muskikkonservatorium í Kaupmannahöfn.
Giftist 1910 Þorsteini Ólafssyni Briem frá Fostastöðum í Blönduhlíð, prófastur, alþm. og ráðherra.
Þau eignuðust 5 dætur: Guðrúnu Láru , f. 22. apríl 1918, fóstra og forstöðukona barnaheimila í Oslí, d. 1996; Kirstín Valgerður, f. 21. júní 1911, kennari og húsfreyja í Reykjavík, d. 1994; Halldóra Valgerður, f. 23. febrúar 1913, arkitekt og deildarstjóri í Stokkhólmi, d. 1993; Valgerður, f. 16. júní 1914, myndlistarkennari og húsfreyja í Reykjavík; Ólöf Ingibjörg, f. 2. mars 1923, d. sama ár.

Nafn skjalamyndara

Halldóra Briem Ek (f. 1913) (1913-1993)

Lífshlaup og æviatriði

Halldóra Valgerður fæddist 13. febrúar 1913 að Hrafnagili í Eyjafirði, dóttir séra Þorsteins Briem, síðar prófasts á Akranesi og ráðherra, og Valgerðar Lárusdóttur. Hún lést 21. október 1993.

Halldóra varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1935, fyrst íslenskra kvenna ásamt bekkjasystur sinni, Ingibjörgu Böðvarsdóttur lyfjafræðingi, að ljúka stúdentsprófi af stærðfræðibraut. Halldóra lagði stund á arkitektúr við Kungliga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi undir handleiðslu prófessors Gunnars Asplunds og lauk þaðan prófi 1940, fyrsti íslenski kvenarkitektinn. Halldóra hóf störf sem arkitekt hjá Kooperativa forbundet, sænsku samvinnuhreyfingunni, 1941 og starfaði þar til 1943. Ári síðar hóf Halldóra rekstur einkastofu sem hún starfrækti til 1945 er hún réð sig til HSB, Hyresgästernas bosteder, þar sem hún vann um tveggja ára skeið, m.a. við hönnun á íbúðarhúsum.
Árið 1949 hóf hún störf hjá Svenska riksbyggen og hannaði þar m.a. fjölbýlishús, dagheimili og félagsheimili en síðar gegndi hún starfi sérfræðings innan stofnunarinnar í litasetningu og efnisvali utan húss og innan. Hún var ráðin til húsameistara sænska ríkisins, Byggnadsstyrelsen, árið 1960 og vann þar að skólabyggingum í fjögur ár, en frá 1964 gegndi Halldóra stöðu deildarstjóra hjá CBS, Centrala sjukvärdsberedningen. Þar veitti hún ráð og leiðbeiningar varðandi barnaheimili, dvalarheimili fyrir aldraða og smærri sjúkrahús.

Halldóra fékkst við lisköpun meðfram störfum sínum, s.s. tónsmíðar og ljóðagerð auk þess að koma sér upp miklu safni glerminja og halda ættfræðifróðleik til haga. Rödd Halldóru hljómaði sem ungfrú Klukka frá 1937 til 1963 hjá talklukku íslenska símans.

Halldóra giftist Jan Ek, lækni, árið 1941 og bjó alla tíð í Svíþjóð og lengst af í Stokkhólmi þar sem hún var heiðursfélagi Íslendingafélagsins. Jan Ek lést árið 1963. Þau eignuðust fimm börn.

Varðveislustaður

Um aðföng eða flutning á safn

Skjölin voru afhent í febrúar 2017 af Valgerði Bergsdóttur fyrir hönd þeirra sem settu upp sýninguna.

Umfang og innihald

Grisjun, eyðing og áætlun

Viðbætur

Skipulag röðunar

Safnið er skráð í einingar og er upprunaleg röðun látin halda sér.

Skilyrði er ráða aðgengi

Skilyrði er ráða endurgerð

Tungumál efnis

  • íslenska
  • danska

Leturgerð efnis

Athugasemdir um tungumál og letur

Umfang og tæknilegar þarfir

Leiðarvísir

Staðsetning frumrita

Staðsetning afrita

Tengdar einingar

Meðlimir Briem fjölskyldunnar eiga einkaskjalasöfn m.a. á handritasafni.
Tónlist er varðveitt á tónverkamiðstöð.
Flestar ljósmyndir eru varðveittar á Þjóðminjasafni.

Related descriptions

Alternative identifier(s)

Efnisorð

Staðir

Lýsinganúmer

Kennimark stofnunar

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Skráningarstaða

Dates of creation revision deletion

15. nóvember 2017

Tungumál

Leturgerð(ir)

Heimildir

Athugasemd skjalavarðar

Haustið 2013 gerði Una Margrét Jónsdóttir 6 útvarpsþætti sem fluttir voru á Rás 1 hjá Ríkisútvarpinu undir heitinu „Tónlist í straujárni“. Þeir fjölluðu um fyrstu íslensku kventónskáldin.
Valgerður Bergsdóttir bjó um skjalasafnið, upprunaleg röðun látin halda sér. Rakel Adolphsdóttir skráði.

Aðföng

Related subjects

Tengdir staðir