Auðkenni
Tegund einingar
Person
Leyfileg nafnaform
Kristín Baldursdóttir
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
F. 22.01.1982 - d. 03.12.2012
Saga
Kristín lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2001 og BA-prófi í stjórnmálafræði og spænsku frá Háskóla Íslands árið 2006. Er hún lést var hún við meistaranám í þýðingarfræðum og spænsku við Háskóla Íslands sem hún hugðist ljúka næsta vor. Kristín tók hluta af náminu sem skiptinám við háskóla í Madrid á Spáni. Kristín stundaði ýmis störf með námi og eftir að hún lauk BA-prófi. Hún vann m.a. sem verkefnastjóri hjá AFS á Íslandi, sem ritstjóri vefja í markaðsdeild Húsasmiðjunnar og Blómavals og sem frístundaráðgjafi með börnum og unglingum. Veturinn 2011-2012 var hún aðstoðarkennari í ensku við grunn- og framhaldsskóla í Madrid. Eftir að Kristín lauk stúdentsprófi var hún einn vetur við sjálfboðastörf á Spáni á vegum Alþjóðlegra ungmennaskipta (AUS) þar sem hún aðstoðaði börn og unglinga sem bjuggu við erfiðar félagslegar aðstæður við heimanám. Eftir heimkomu tók hún um nokkurt skeið virkan þátt í starfi AUS hér á landi og var m.a. formaður samtakanna 2004-2005. Kristín lærði á fiðlu og þverflautu sem barn og tók þátt í kórstarfi frá unga aldri. Hún söng m.a. í Gradualekór Langholtskirkju, kór Menntaskólans í Reykjavík, Háskólakórnum, Mótettukór Hallgrímskirkju og kór Complutense-háskólans í Madrid.
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1447670/
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1447670/
Staðir
Réttindi
Starfssvið
BA-prófi í stjórnmálafræði og spænsku frá Háskóla Íslands árið 2006. Er hún lést var hún við meistaranám í þýðingarfræðum og spænsku við Háskóla Íslands
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Stjórnsvæði
Lýsinganúmer
IS
Kennimark stofnunar
IcReLIH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Final
Skráningarstaða
Partial
Skráningardagsetning
Frumskráð 10.07.2013
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Athugasemdir um breytingar
JKÁ skráði