Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
Kristín Guðjónsdóttir, f. 28. júlí 1918 á Búðareyri við Reyðarfjörð. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Guðmundsdóttir, f. 24. júlí 1894 í Veltu, Efri-Kastala, Mjóafirði, d. 6. júlí 1975, og Guðjón Jónsson skipstjóri, f. 7. febrúar 1893 á Byggðarenda, Álftanesi, d. 1921. Stjúpfaðir Kristínar var Sveinbjörn Pétur Guðmundsson kennari, f. 23.4. 1881 í Skáleyjum á Breiðafirði, d. 1955.
Maki:Sigurberg Bogason. Börn þeirra: 1) Erla, 2) Margrét Sigurborg, 3) Guðjón
Sigurberg og Kristín hófu sinn 66 ára búskap í Flatey á Breiðafirði þar sem Sigurberg stundaði hefðbundinn sjálfþurftarbúskap þess tíma. Þau bjuggu lengst af í húsinu Alheimi sem varð seinna þeirra sumardvalarstaður. Þegar vinnu þraut í Flatey um 1957 fluttist fjölskyldan til Vestmannaeyja. Þar lærði Sigurberg húsasmíðar og var virkur þátttakandi í skákfélaginu. Eftir eldgosið 1973 bjuggu þau í Reykjavík.