Vor í Vesturbæ - Samtal við eldri borgaraArnþór GunnarssonUm er að ræða fremur óformlegt samtal Arnþórs Gunnarssonar við nokkra eldri borgara um vorverkin í gamla daga og ýmislegt fleira. Samtalið var tekið upp á félagsmiðstöðinni að Aflagranda 40 í Reykjavík. Tilefnið var það að Björg Sveinbjörnsdóttir, starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar, hafði samband við Miðstöð munnlegrar sögu og óskaði eftir því að Miðstöðin hefði umsjón með og tæki upp samræður um vorverkin á opnu húsi í félagsmiðstöðinni. Þá voru ýmsir viðburðir á dagskrá, þar á meðal þessi sem hafði yfirskriftina „Vorverkin“. Dagskráin var auglýst. Viðmælendur sem mest koma við sögu eru Ragnheiður Guðmundsdóttir, f. 24. janúar 1929, Elín (föðurnafn óþekkt), fædd í Reykjavík um 1930, og Bergljót Eiríksdóttir, f. 1. ágúst 1924.2012-05-11Ein stafræn hljóðskrá.https://einkaskjol.is/index.php/vor-i-vesturbae-samtal-vi-eldri-borgaraMMS 0083https://einkaskjol.is/index.php/mi-sto-munnlegrar-soguMiðstöð munnlegrar sögu