Sveinbjörn ólst upp við öll almenn sveitastörf og tók ungur við ábyrgð á búskapnum á Heiðarbæ vegna heilsubrests föður síns. Skólagangan í Barnaskólanum á Ljósafossi var ekki löng, en reyndist honum þó haldgott veganesti út í lífið. Seinna lauk hann búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri.
Sveinbjörn var bóndi og veiðimaður af lífi og sál. Sauðfjárrækt var hans aðalbúgrein en meðfram henni ræktaði hann kjúklinga og nautgripi, að ógleymdum gulrófum, svo það helsta sé nefnt. Hann stundaði alla tíð silungsveiðar í Þingvallavatni og síðustu árin, eftir að sonur hans og tengdadóttir tóku við sauðfjárbúskapnum, hafði hann meiri tíma til að stunda veiðina, sem jafnframt var eitt af hans helstu áhugamálum. Sveinbjörn var ástríkur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi – og hann var í miklu uppáhaldi hjá barnabörnunum. Hann var vinur vina sinna og fór ekki í manngreinarálit.
Hann tók virkan þátt í félagsmálum í sinni sveit; var um árabil í stjórn Búnaðarfélags og Sauðfjárræktarfélags Þingvallahrepps, Veiðifélags Þingvallavatns, í hreppsnefnd og sóknarnefnd, auk þess sem hann var lengi meðhjálpari í Þingvallakirkju. Þá söng hann um áratugaskeið í Karlakórnum Stefni og Karlakór Kjalnesinga. Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1441626/
Sveinbjörn og Steinunn voru hjón
Sveinbjörn er faðir Kolbeins.
Sveinbjörn er faðir Margrétar.
Sveinbjörn er faðir Jóhannesar.
Sveinbjörn er faðir Helgu.