Reference code
Title
Date(s)
Level of description
Extent and medium
Name of creator
Biographical history
F. á Ærlæk í Öxarfirði 10. okt. 1812, d. 22. nóv. 1878. For.: Gunnar Gunnarsson (f. 1786, d. 7. ágúst 1819) síðast bóndi á Hallgilsstöðum á Langanesi og k. h. Elísabet Sigurðardóttir (f. 1788, d. 8. okt. 1825) húsmóðir. Föðurbróðir Sigurðar Gunnarssonar alþm. í Stykkishólmi og tengdafaðir Jóns Jónssonar alþm. á Stafafelli. K. (20. júlí 1841) Bergljót Guttormsdóttir (f. 12. ágúst 1809, d. 2. okt. 1877) húsmóðir, systir Margrétar 1. konu Einars Ásmundssonar alþm. For.: Guttormur Pálsson og k. h. Margrét Vigfúsdóttir, systir Guttorms Vigfússonar alþm. á Arnheiðarstöðum. Börn: Guttormur (1842), Margrét (1843), Elísabet (1846), Guðlaug (1848), Jón (1850), Gísli (1852), Gunnar (1853), Stefán Benedikt (1854).
Hóf fyrst nám í silfur- og látúnssmíðum, en nam síðan skólalærdóm hjá Jóni guðfræðingi Þórarinssyni á Valþjófsstað og séra Guttormi Pálssyni í Vallanesi. Stúdentspróf Bessastöðum 1839.
Stundaði veturna 1839–1841 kennslu í Reykjavík, en var sumarið 1840 fylgdarmaður J. O. Schythe, dansks náttúrufræðings. Settist síðan að í Vallanesi og stundaði kennslu. Fékk 1844 Desjarmýri, vígður 1845. Fékk Hallormsstað 1861, fluttist þangað 1862 og hélt til æviloka. Gegndi jafnframt Þingmúlaprestakalli frá 1869. Prófastur í Suður-Múlaprófastsdæmi 1863–1874. Kynntist lækningum hjá tengdaföður sínum, stundaði þær allmikið og fékk að lokum leyfi stjórnvalda til þess að stunda lækningar.
Þfm. Norður-Múlasýslu 1851, alþm. Norður-Múlasýslu 1869–1874. Sat ekki þing 1873.
Ritstjóri: Iðunn (1860).
Repository
Immediate source of acquisition or transfer
Scope and content
Appraisal, destruction and scheduling
Accruals
System of arrangement
Conditions governing access
Conditions governing reproduction
Language of material
Script of material
Language and script notes
Physical characteristics and technical requirements
Finding aids
Existence and location of originals
Existence and location of copies
Related units of description
Related descriptions
Alternative identifier(s)
Subject access points
Place access points
Name access points
- Sigurður Gunnarsson (Creator)