Lögfræðingur, bæjarfógeti í Vestmannaeyjum og síðar fulltrúi í Reykjavík. Námsmaður í Kaupmannahöfn 1910. Húsbóndi á Sóleyjargötu 7, Reykjavík 1930.
Published
30 bréf frá 18 bréfriturum.
Einnig ýmis gögn úr fórum Sigfúsar, Jarþrúðar konu hans og ættingja þeirra.
Bréfunum er raðað eftir bréfriturum í stafrófsröð.
Engu hefur verið eytt.
10. desember 1969 afhenti Sigfús M. Johnsen bréf úr fórum eiginkonu sinnar, Jarþrúðar Pétursdóttur, en hún var var bróðurdóttir Jarþrúðar Jónsdóttur. Sigfús hringdi svo 16. desember og vildi leggja áherslu á að ekki væri um gjöf að ræða heldur afhendingu til könnunar. 18. desember fór Grímur Helgason, forstöðumaður handritadeildar, til Sigfúsar og sýndi honum umbúnað bréfanna. Leist honum honum vel á og vildi láta þau vera áfram á Landsbókasafni og afhenti enn fremur bréf og kort til viðbótar.
Grímur fór aftur til Sigfúsar 27. júlí 1970 og efhenti hann þá 11 bréf til viðbótar - frá séra Matthíasi til Jarþrúðar.
Allt var þetta afhent Sigfúsi aftur á árinu 1971 en 8. apríl 1972 keypti safnið þessi bréf og fleiri af honum.
Ekki er von á viðbótum.
Lbs 32 NF - Jarðþrúður Jónsdóttir: Bréfasafn
Lbs 400 NF - Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen: Bréfasafn
Lbs 402 NF - Jón Pétursson: Bréfasafn
Lbs 403 NF - Jóhanna Soffía Bogadóttir: Bréfasafn
Lbs 404 NF - Brynjólfur Pétursson: Bréfasafn
Lbs 405 NF - Helga Skúladóttir: Bréfasafn
Safnið er opið.
Skv. reglum Landsbókasafns um ljósritun og myndun.