Var á Barkarstöðum, Eyvindarmúlasókn, Rang. 1835. Prestur á Breiðabólsstað í Fljótshlíð, Rang. 1858-1860 og í Hraungerði í Flóa, Árn. frá 1860 til dauðadags. Þjónaði samhliða Klausturhólum í Grímsnesi, Árn. 1884 og Ólafsvöllum á Skeiðum, Árn. 1885. Prófastur í Hraungerði í Árnesprófastsdæmi frá 1874 til dauðadags.
Vel metinn maður og forsjáll búmaður.
Fyrri kona: Vigdís (d. 1865) Pálsdóttir á Hunkurbökkum, Þorsteinssonar.
Seinni kona: Katrín Vigfúsdóttir í Flögu, Bótólfssonar.