Pálína fluttist með foreldrum sínum og systkinum að fossi í Grímsnesi árið 1927, síðar fluttu þau að Gíslastöðum í Grímsnesi og er Pálína þar til heimilis uns foreldrar hennar bregða búi 1944 og flytja til Reykjavíkur. Þegar Pálína flutti til Reykjavíkur vann hún við fiskvinnslustörf, en fluttist fljótlega aftur í sveitina og var þá hjá bróður sínum Garðari á Mosfelli, en gerðist síðan ráðskona á Seli í sömu sveit. Eftir að hún giftist þá var hún húsfreyja í Kaldárhöfða í Grímsnesi. Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1235264/?item_num=74&dags=2008-08-13