Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
Menntun: Leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands 1981. Diploma í stjórnun frá sama skóla 1996. Meistarapróf (M.Ed.) í uppeldis- og menntunarfræði frá KHÍ 2000. Stundar doktorsnám við The University of Warwick í Englandi og KHÍ.
Starfsferill: Leikskólakennari á Hagaborg 1981-1982. Leikskólastjóri á Steinahlíð 1982-1987. Við ráðgjafar- og kennslustörf við eigið fyrirtæki, Dagvistarráðgjöf ehf., 1987-1988. Leikskólakennari í Lundi í Svíþjóð 1988-1989. Leikskólakennari á Drafnarborg 1989. Leikskólastjóri á Hjalla í Hafnarfirði 1989-2000, á Reykjakoti í Mosfellsbæ 2000-2001 og á Hjalla frá 2000. Höfundur svonefndrar Hjallastefnu sem byggist m.a. á kynjaskiptu skólastarfi og er notuð að hluta eða í heild á fjölda leikskóla.
Önnur störf: Varaformaður Fóstrufélags Íslands 1981-1986. Störf í nefndum og ráðum á vegum Fóstrufélags Íslands, Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og BSRB 1981-1987. Störf í nefndum og ráðum á vegum Alþýðubandalagsins og seta í miðstjórn og framkvæmdastjórn flokksins 1981-1986. Í framkvæmdanefndum Samtaka kvenna á vinnumarkaði og Kvennaathvarfsins í Reykjavík, með hléum, 1981-1995. Formaður Samtakanna ’78, félags lesbía og homma á Íslandi 1994-1996 og 1997-1998. Varamaður í stjórn Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands frá 2000.
Ritstörf: Æfingin skapar meistarann, leikskóli fyrir stelpur og stráka, 1992. Myndband og samnefnt fylgirit: Að klífa hjallann – ný leið í leikskólastarfi, 1992; (meðhöf. Anne-Mette Kruse, Cekvina), gefið út á íslensku og fleiri tungumálum. Fjölmargar blaða- og tímaritsgreinar hér á landi og á Norðurlöndunum um leikskólamál og málefni stúlkna og drengja í skólum. Blaðagreinar um jafnréttismál og jafnréttisbaráttu samkynhneigðra. Tölvutæk starfsgögn, handbækur og foreldrakver fyrir leikskóla. Tölvuforritið Kjarninn (meðhöf. Matthías Matthíasson), upplýsinga- og rekstrarkerfi fyrir leikskóla, 1999.
Viðurkenningar: Verðlaun fyrir besta námsárangur í fóstrunámi við Fósturskóla Íslands 1981. Verðlaun fyrir lokaritgerð í stjórnunarnámi við Fósturskóla Íslands 1996.Verðlaun Jafnréttisráðs fyrir Hjallastefnuna, sérstakt átak í jafnréttismálum, 1997.
Heimild: Samtíðarmenn 2003
Staðir
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Stjórnsvæði
Lýsinganúmer
Kennimark stofnunar
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Skráningarstaða
Skráningardagsetning
Tungumál
- íslenska