Stafrænar endurgerðir

Tímarit.is
Dagblöð og tímarit frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi
Handrit.is
Samskrá íslenskra handrita með mynduðum eintökum
Bækur.is
Stafræn endurgerð íslenskra bóka
Íslandskort.is
Íslandskort og ágrip af kortasögu
Hljóðsafn
Stafræn afrit af tónlist og viðtöl

Gagnasöfn

Skemman
Safn námsritgerða og rannsóknarita
Rafhlaðan
Rafrænt varðveislusafn
Vefsafnið
Íslenskir vefir frá 1996 til dagsins í dag
Leitir.is
Samleit í gagnasöfnum og samskrá bókasafna
Finna tímarit
SFX-leit að tímaritum í áskrift safnsins
Hvar.is
Landsaðgangur að tímarita- og gagnasöfnum
Þýðingar úr íslensku
Leit að þýðingum úr íslensku í Leitir.is

Safn Lbs 0102 NF - Lestrarfélag kvenna Reykjavíkur

Mánaðarrit I Mánaðarrit II Mánaðarrit III Mánaðarrit IV Mánaðarrit V Mánaðarrit VI Mánaðarrit VII Mánaðarrit VIII

Tilvísunarkóði

IS IcReLIH Lbs 0102 NF

Titill

Lestrarfélag kvenna Reykjavíkur

Dagsetning(ar)

  • 1911 - 1961 (Accumulation)

Þrep lýsingar

Safn

Umfang og efnisform

Safnið er í fjórum öskjum.

Nafn skjalamyndara

Lestrarfélag kvenna Reykjavíkur (1911-1960)

Stjórnunarsaga

Lestrarfélag kvenna var stofnað í Reykjavík 18. september árið 1911 af konum úr Kvenréttindafélagi Íslands sem höfðu þá rekið lesstofu fyrir konur í tvö ár. Fyrirmyndin kom að utan, en slíkar stofur voru reknar víða í Evrópu og meðal annars í Kaupmannahöfn. Félagsritið Mánaðarritið hóf göngu árið 1912 og var handskrifað inn í sérstaka bók og lesið upp á fundum. Þar getur að líta tilgang félagsins á titilsíðunni: „að vekja og efla löngun til að lesa góðar bækur og eftir föngum að rekja og ræða efni þeirra til aukins skilnings, og ef verða mætti, til einhverra verklegra framkvæmda.“ Ritið lifði í rúma tvo áratugi og gefur góða mynd af starfsemi félagsins og hugðarefnum félagskvenna. Meðal þeirra sem rituðu oft í bókina var Theodóra Thoroddsen skáldkona.

Félagið opnaði lesstofu fyrir börn árið 1912 og rak hana í 25 ár. Stofan var opin tvo tíma á dag yfir vetrartímann, alla virka daga. Félagskonur skiptust á að hafa sögustund fyrir börnin og hjálpa þeim við heimanám. Starfsemin var einkum hugsuð fyrir börn sem bjuggu við slæmar aðstæður eða fengu hvorki næði né aðstoð við heimanámið.

Málhreinsunarnefnd starfaði á vegum félagsins frá árinu 1920 í samvinnu við Verkfræðingafélag Íslands og var tilgangurinn að skapa ný orð og vernda íslenskt mál. Meðal nýyrða sem þarna urðu til má nefna veggfóður (betrekk), snyrting (tojlett) og blómvöndur (búkett).

Félagið fékk húsaleigustyrk frá bænum til starfseminnar en félagskonur ráku bókasafn sitt og lesstofu í sjálfboðavinnu. Aðsóknin fór hins vegar þverrandi síðustu árin og félagið var lagt niður árið 1961 og bækurnar gefnar Reykjavíkurborg til minningar um Laufeyju Vilhjálmsdóttur sem var formaður félagsins frá upphafi til dánardags (29. mars 1960).

Heimild: http://is.wikipedia.org/wiki/Lestrarf%C3%A9lag_kvenna

Um aðföng eða flutning á safn

Megnið af handritunum kom um hendur Guðrúnar Guðmundsdóttur, dóttur formanns félagsins Laufeyjar Valdimarsdóttur, fyrir hönd Sigríðar J. Magnússon.
21. desember 1970 afhenti Guðrún, fyrir hönd Sigríðar, Mánaðarrit félagsins (áður Lbs 4763–4770 4to) og 23. mars 1977 afhenti Guðrún, fyrir hönd Sigríðar, sex fundargerðarbækur , bókaskrár, tvær aðfangaskrár, tvær bókaskrár, og aðsóknartöflur að barnalesstofu félagsins (áður Lbs 4771–4781 4to).
15. maí 1983 afhenti Anna Sigurðardóttir, Kvennasögusafni Íslands, nokkur bréf er varða félagið.
23. nóvember 2011 afhenti Auður Styrkársdóttir, Kvennsögusafni Íslands, fundargerðarbók 13.3.1956–6.6.1961 ásamt erindi eftir Laufeyju Valdimarsdóttur og nokkrum bréfum og skjölum er varða félagið.

Umfang og innihald

Safnið er í fjórum öskjum og skipt í fjóra efnisflokka.
Efnisflokkar safnsins eru þessir:
A. Fundargerðarbækur (askja 1)
B. Mánaðarrit (askja 2)
C. Bréf, erindi og skýrslur (askja 3)
D. Bókaskrár og aðfangaskrár (askja 4)

Grisjun, eyðing og áætlun

Engu hefur verið eytt.

Viðbætur

Ekki er von á viðbótum.

Skipulag röðunar

Stuðst er við ISAD(G).

Skilyrði er ráða aðgengi

Safnið er opið.

Skilyrði er ráða endurgerð

Samkvæmt reglum Landsbókasafns um ljósritun og myndun.

Tungumál efnis

  • íslenska

Leturgerð efnis

Athugasemdir um tungumál og letur

Umfang og tæknilegar þarfir

Leiðarvísir

Staðsetning frumrita

Staðsetning afrita

Tengdar einingar

Lbs 54 NF. Bríet Bjarnhéðinsdóttir og fjölskylda.

Related descriptions

Útgáfuupplýsingar

Ekki er vitað um nein not.

Alternative identifier(s)

Efnisorð

Staðir

Lýsinganúmer

IS

Kennimark stofnunar

IcReLIH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Stuðst er við ISAD(G).

Staða

Final

Skráningarstaða

Full

Dates of creation revision deletion

Apríl 2015.

Tungumál

Leturgerð(ir)

Heimildir

Athugasemd skjalavarðar

Halldóra Kristinsdóttir gerði lýsandi samantekt í apríl 2015.

Aðföng

Related subjects

Tengdir einstaklingar og stofnanir

Tengdir staðir