Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
- Christján Christjánson
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
F. á Þórðarstöðum í Fnjóskadal 21. sept. 1806, d. 13. maí 1882. For.: Kristján Jónsson (f. um 1771, d. 1. jan. 1844) bóndi á Illugastöðum í Fnjóskadal og k. h. Guðrún Halldórsdóttir (f. um 1776, d. 24. ágúst 1846) húsmóðir. Bróðir Benedikts alþm. og Jóns alþm. Kristjánssona. K. (5. júní 1845) Ragnheiður Jónsdóttir Thorstensen (f. 22. nóv. 1824, d. 14. febr. 1897) húsmóðir. For.: Jón Thorstensen alþm. og k. h. Elín Stefánsdóttir, f. Stephensen.
Stúdentspróf Bessastöðum 1826. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1838.
Skrifari 1826–1830 á Möðruvöllum hjá Grími Jónssyni amtmanni. Starfsmaður í rentukammerinu 1833–1840. Skrifari embættismannanefndarinnar í Reykjavík 1841. Málaflutningsmaður í Reykjavík 1841–1843. Settur land- og bæjarfógeti í Reykjavík 1843–1844. Sýslumaður í Skaftafellssýslu 1844–1848, sat á Höfðabrekku. Varð 1847 jafnframt umboðsmaður Kirkjubæjar- og Þykkvabæjarklaustursjarða. Skip. 1848 dómsmálaritari og 2. yfirdómari í landsyfirréttinum, en tók ekki við því embætti fyrr en næsta sumar. Skip. 10. júlí 1849 land- og bæjarfógeti í Reykjavík, en gegndi jafnframt áfram embætti yfirdómara þangað til Jón Pétursson tók við því sumarið 1850. Vikið frá embætti 28. sept. 1851 vegna framkomu sinnar á Þjóðfundinum, en gegndi því þó fram í marsmánuð 1852. Fór þá utan og varð fulltrúi í hinni íslensku stjórnardeild í Kaupmannahöfn. Skip. 1854 sýslumaður í Skagafjarðarsýslu, sat í Hofstaðaseli. Skip. 1860 sýslumaður í Húnavatnssýslu, sat á Geitaskarði. Skip. 1871 amtmaður í norður- og austuramtinu, lausn 1881, sat á Möðruvöllum í Hörgárdal til 1874, er amtmannsstofan þar brann, en síðan á Akureyri.
Konungkjörinn alþm. 1849. Þfm. Reykvíkinga 1851.
Aðstoðarmaður konungsfulltrúa á Alþingi 1847. Varaforseti Þjóðfundarins 1851.
Staðir
Höfðabrekka
Geitaskarð
Möðruvellir, Hörgárdalur
Akureyri
Reykjavík
Réttindi
Starfssvið
Sýslumaður
Amtmaður
Þjóðfundarfulltrúi
Kammeráð
jústistráð
Aðstoðarmaður konungsfulltrúa á alþingi
Þingmaður
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Stjórnsvæði
Lýsinganúmer
Kennimark stofnunar
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Skráningarstaða
Skráningardagsetning
Tungumál
Leturgerð(ir)
Heimildir
Páll Eggert Ólason. 1950. Íslenzkar æviskrár. 3. bindi. J-N. Bls. 378: http://baekur.is/bok/000306940/3/382/Islenzkar_aeviskrar_fra_Bindi_3_Bls_382
Æviágrip um Kristján Kristjánsson er að finna í Alþingismannatali á heimasíðu Alþingis: http://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=394