F. í Stóru-Gröf á Langholti í Skagafirði 1. sept. 1794, d. 7. des. 1859. For.: Samson Samsonarson (d. 1813) bóndi þar og k. h. Ingibjörg Bjarnadóttir húsmóðir. K. 1. (29. nóv. 1822) Guðrún Sigurðardóttir (f. um 1793, d. 22. okt. 1840) húsmóðir. K. 2. (1841) Dýrfinna Jónsdóttir (f. um 1794, d. 13. ágúst 1871) húsmóðir. For.: Jón Jónsson og k. h. Dýrfinna Egilsdóttir. Börn Jóns og Guðrúnar voru sex, upp komust: Guðrún (1827), Sigurður (1829), Jónas (1831). Börn Jóns og Katrínar Gísladóttur: Jón (um 1816), Katrín (um 1817). Dóttir Jóns og Önnu Sölvadóttur: Guðrún (1859).
Bóndi á Grund í Blönduhlíð 1822–1824, í Stóru-Gröf 1824–1838, í Keldudal 1838–1859.
Alþm. Skagf. 1845–1858. Þfm. 1851, en komst ekki vegna meiðsla.