Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
Jón Bogason fæddist í Flatey á Breiðafirði 9. apríl 1923.
Foreldrar Jóns voru Bogi Guðmundsson kaupmaður í Flatey, f. 21.1. 1877, d. 20.5. 1965, og Sigurborg Ólafsdóttir húsmóðir, f. 7.9. 1881, d. 24.9. 1952.
Eiginkona Jóns var Guðrún Berglind Sigurjónsdóttir ljósmóðir, f. 19.6. 1932, d. 29.11. 2001.
Jón ólst upp í Flatey og gekk þar í barnaskóla. Hann stundaði nám við Handíða- og myndlistaskólann 1946-1947. Jón fór ungur til sjós og stundaði bæði sjómennsku og verkamannavinnu viðs vegar um land. Hann settist að í Kópavogi árið 1953 og bjó þar alla tíð. Jón hóf störf hjá Hafrannsóknastofnun 1972 en vann jafnframt sjálfstætt að söfnun skelja og annarra sjávarlífvera. Heil ættkvísl skeldýra hefur verið nefnd í höfuðið á honum og er latneska heitið á henni Bogasonia.Jón hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar á vistfræði sjávar. 1. janúar 1998 var Jón sæmdur Riddarakrossi íslensku fálkaorðunnar vegna rannsókna sinna á botndýrum við Ísland Árið 1998 afhenti hann Náttúrufræðistofnun Íslands til eignar safn hryggleysingja af Íslandsmiðum.
Heimild: Morgunblaðið, 6. nóvember 2009.