Identity area
Type of entity
Authorized form of name
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
History
Ívar var fæddur í Reykjavík 19. janúar 1912, sonur Guðmundar Jónssonar verkstjóra og Sesselju Stefánsdóttur. Eftir nám við MR og MA 1927-31 gerðist hann blaðamaður og síðan fréttaritstjóri Morgunblaðsins 1934 til 1951, er hann gerðist blaðafulltrúi hjá upplýsingadeild Sameinuðu þjóðanna í New York.
Eftir það starfaði hann hjá SÞ, rak upplýsingaskrifstofu fyrir Norðurlönd í Kaupmannahöfn 1955-60, var upplýsingafulltrúi við friðarsveitir SÞ á Ítalíu og í Kairo, blaðafulltrúi við ráðstefnu utanríkisráðherra stórveldanna í Genf 1959, blaðafulltrúi forseta Allsherjarþingsins í New York 1961 og síðan forstjóri skifstofunnar í Karachi til 1965 er hann tók aftur við í Kaupmannahöfn. Deildarstjóri alþjóðadeildar upplýsingaskrifstofu SÞ í New York var Ívar 1967-70 og árið eftir aðalfulltrúi við mannfjöldasjóð SÞ.
Eftir að Ívar lauk störfum hjá SÞ fyrir aldurs sakir gerðist hann ræðismaður Íslands í New York og var jafnframt viðskiptafulltrúi við sendiráðið í Washington. Er því starfsskeiði lauk 1986 kom Ívar aftur að Morgunblaðinu sem fréttaritari blaðsins í Washington og sendi heim fréttir frá Bandaríkjunum allt til 1992.
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/268602/?item_num=29&dags=1996-06-04
Places
Legal status
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
General context
Relationships area
Control area
Description identifier
Institution identifier
Rules and/or conventions used
Status
Level of detail
Dates of creation, revision and deletion
Language(s)
- Icelandic