Ívar var fæddur í Reykjavík 19. janúar 1912, sonur Guðmundar Jónssonar verkstjóra og Sesselju Stefánsdóttur. Eftir nám við MR og MA 1927-31 gerðist hann blaðamaður og síðan fréttaritstjóri Morgunblaðsins 1934 til 1951, er hann gerðist blaðafulltrúi hjá upplýsingadeild Sameinuðu þjóðanna í New York.
Eftir það starfaði hann hjá SÞ, rak upplýsingaskrifstofu fyrir Norðurlönd í Kaupmannahöfn 1955-60, var upplýsingafulltrúi við friðarsveitir SÞ á Ítalíu og í Kairo, blaðafulltrúi við ráðstefnu utanríkisráðherra stórveldanna í Genf 1959, blaðafulltrúi forseta Allsherjarþingsins í New York 1961 og síðan forstjóri skifstofunnar í Karachi til 1965 er hann tók aftur við í Kaupmannahöfn. Deildarstjóri alþjóðadeildar upplýsingaskrifstofu SÞ í New York var Ívar 1967-70 og árið eftir aðalfulltrúi við mannfjöldasjóð SÞ.
Eftir að Ívar lauk störfum hjá SÞ fyrir aldurs sakir gerðist hann ræðismaður Íslands í New York og var jafnframt viðskiptafulltrúi við sendiráðið í Washington. Er því starfsskeiði lauk 1986 kom Ívar aftur að Morgunblaðinu sem fréttaritari blaðsins í Washington og sendi heim fréttir frá Bandaríkjunum allt til 1992. Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/268602/?item_num=29&dags=1996-06-04