Menntun: Sveinspróf í húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík 1973. Byggingatæknifræðingur frá Tækniskóla Íslands 1979. Nám í brunavarnaverkfræði við Háskólann í Lundi 1989-1990. Nám fyrir yfirmenn slökkviliða við Statens brandskole í Kaupmannahöfn 1981 og við Fire Service College í Moreton-in-Marsh í Englandi 1986. Námskeið fyrir badmintonþjálfara í Danmörku 1979 og 1980.
Starfsferill: Kennari í stærðfræði við Tækniskóla Íslands 1979-1980. Tæknifræðingur á Verkfræðistofu Braga og Eyvindar 1980. Tæknifræðingur hjá Slökkviliðinu í Reykjavík 1980-1982. Varaslökkviliðsstjóri 1982-1991. Landsliðsþjálfari í badminton hjá Badmintonsambandi Íslands 1980-1986. Slökkviliðsstjóri Reykjavíkur frá 1991.
Önnur störf: Í stjórn Tæknifræðingafélags Íslands 1983-1987. Í stjórn Knattspyrnufélagsins Vals 1983-1989. Í badmintonráði Reykjavíkur frá 1984.
Viðurkenning: Heiðurslaun Brunabótafélags Íslands 1986. Heimild: Samtíðarmenn 2003
Hrólfur og Ingibjörg eru hjón