Identity area
Type of entity
Authorized form of name
Parallel form(s) of name
- Hermann Elías Johnsson
- Hermanníus E. Johnsson
- Hermanníus E. Johnson
- Hermann Johnsson
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
History
Hermanníus Elías Johnson (17. desember 1825 – 2. apríl 1894) var íslenskur lögfræðingur, sýslumaður Rangæinga og um tíma landfógeti og bæjarfógeti í Reykjavík.
Hermanníus var fæddur á Ísafirði, sonur Jóns Jónssonar verslunarstjóra þar og konu hans Guðbjargar Jónsdóttur. Hann skrifaði sig jafnan Johnson. Hann varð stúdent frá Lærða skólanum 1849 og lauk lögfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1856. Árið 1858 varð hann málflutningsmaður við yfirréttinn. Hann var landfógeti og jafnframt bæjarfógeti í Reykjavík frá 1859 til 1861 en þá varð hann sýslumaður í Rangárvallasýslu og gegndi því embætti í 29 ár en fékk lausn árið 1890. Hann bjó allan sinn sýslumannsferil á Velli og dó þar.
Hermanníus þótti friðsæll og farsæll í starfi. Kona hans var Ingunn Halldórsdóttir og áttu þau sex börn sem jafnan skrifuðu sig Hermannsbörn. Einn sona þeirra var Halldór Hermannsson, bókavörður við Fiske-bókasafnið við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum.
Places
Rangárvellir
Legal status
Functions, occupations and activities
Landfógeti
Bæjarfógeti
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
General context
Relationships area
Control area
Description identifier
Institution identifier
Rules and/or conventions used
Status
Level of detail
Dates of creation, revision and deletion
Language(s)
Script(s)
Sources
Páll Eggert Ólason. 1949. Íslenzkar æviskrár. 2. bindi. F-Í. Bls. 351: http://baekur.is/bok/000306940/2/355/Islenzkar_aeviskrar_fra_Bindi_2_Bls_355
Æviágrip er fengið af wikipediu: https://is.wikipedia.org/wiki/Hermann%C3%ADus_E._Johnson