Helga fæddist í Vatnsholti í Flóa í Árnessýslu. Foreldrar: Herdís Jónsdóttir húsmóðir og bóndi frá Kampholti í Flóa og SigurjónGestsson leigubílsstjóri frá Staðarbakka í Helgafellssveit á Snæfellsnesi og síðar bóndi. Eiginmaður: Þórir Gíslason tannlæknir. Eignuðust þrjú börn, Brynjólf, Herdísi og Gísla Friðrik. Stúdentspróf frá MR 1956 og kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands ári síðar. 1979 lauk hún BA-prófi í íslensku og sálfræði við HÍ . Stundaði nám við háskólann í Gautaborg 1980-81 og meistaranám í málfræði við HÍ 1992-93. Kenndi við Kópavogsskóla 19570-72. Blaðamaður á Þjóðviljanum og bæjarblaði Kópavogs 1975-81. Kenndi við Víghólaskóla 1977-82 og síðan Menntaskólann í Kópavogi til ársins 1999. Stofnaði þá Lestrarskóla Helgu Sigurjónsdóttur sem hún starfrækti til 2010. Helga var virk í málefnum Kópavogsbæjar: bæjarfulltrúi fyrir Alþýðubandalagið1974-79 og sat þá í félagsmálaráði bæjarins og var formaður þess síðasta árið. Þá var hún forseti bæjarstjórnar 1978-79. Helga átti frumkvæði að stofnun jafnréttisnefndar í Kópavogi í tilefni Kvennaárs Sameinuðu þjóðanna 1975 og átti sæti í nefndinni til 1978 en hún var sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Árin 1994-95 var Helga bæjarfulltrúi Kvennalistans í Kópavogi en frá 1995-98 sat hún sem óháður bæjarfulltrúi. Helga var formaður stjórnar Kvenfélags Kópavogs 1994-96. Helga var einn af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar árið 1970.