Hann gekk í Austurbæjarskóla og að honum loknum lauk Halldór prófi frá Verzlunarskóla Íslands 1942. Halldór réðst til h.f. Shell á Íslandi í febrúar 1943, sem varð síðan að Olíufélaginu Skeljungi. Hann veitti forstöðu framkvæmdadeild fyrirtækisins frá árinu 1957 og starfaði þar óslitið til ársins 1993 eða í fimmtíu ár. Halldór var heiðraður af EPACT, alþjóðlegri umhverfisverndarhreyfingu um olíumál. Frá bernsku hafði Halldór mikinn áhuga á flugi og tók einkaflugmannspróf 4. september 1946 og var hann með skírteini númer 38. Í félagi við bekkjarbróður sinn úr Verzlunarskóla Íslands, Jón N. Pálsson, síðar flugvirkja, keypti hann Piper Cub vélina TF KAK sem er elsta nýskráða einkaflugvél á Íslandi. Þessir ungu frumkvöðlar fluttu vélina inn nýja til landsins ásamt þeim Einari Pálssyni, Bjarna Jenssyni, Ragnari Kvaran, Óskari Guðmundssyni og Þorleifi Þorleifssyni í Amatör. Var vélin seinna notuð til kennslu hjá flugskólanum Þyti enda hefur fjöldi íslenskra atvinnuflugmanna hafið ferilinn á þeirri vél. Halldór var ásamt nokkrum félögum sínum gerður að heiðursfélaga í Vélflugfélagi Íslands og sæmdur silfurmerki alþjóðasamtaka einkaflugmanna AOPA árið 1989. TF KAK hefur nýlega verið endurbyggð og það gladdi Halldór mjög að sjá henni flogið á ný í desember síðastliðnum. Halldór var mikill fjölskyldumaður og dvaldi löngum stundum við sumarbústað sinn í Þingvallasveit sem hann og öll fjölskyldan hafði mikið yndi af. Hélt hann alla tíð góðum tengslum við sveitunga sína, því þar voru hans rætur. Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1390615/