Guðmundur Vigfússon (1810-1870). Prestur á Stóranúpi í Gnúpverjahreppi 1837-1846. Prestur á Stóranúpi, Stórunúpssókn, Árn. 1845. Prestur á Borg á Mýrum 1846-1859 og síðast á Melstað í Miðfirði frá 1859 til dauðadags. Foreldrar: Vigfús á Signýjarstöðum Guðmundsson (ökonomuss Vigfússonar) og k. h. Guðrún Jónsdóttir prests og skálds Hjaltalíns (nefndur áður meðal Hvammpresta). „Hann var hirðumaður mikill og atorkusamur, mannkostamaður mikill og höfðinglyndur, enda vel stæður.“ „Mikill atorkumaður, höfðingi, vel efnaður... Snilldarskrifari“ Kona: Guðrún yngri Finnbogadóttir verzlunarmanns í Rvík, Björnssonar. Börn þeirra: Solveig átti systkinabarn sitt, Ingimund Jakobsson (prests Finnbogasonar) í Svaðbæli; Guðrún, f. k. Böðvars Böðvarssonar (prests á Mel, Þorvaldssonar), síðast í Hafnarfirði; Finnbogi á Tindum í Geiradal; Vigfús söðlasmiður; Arndís, kona Theódórs verzlunarmanns á Borðeyri, Ólafssonar; Rannveig Sigríður Dórothea, kona Jóns Jónssonar á Auðunnarstöðum; Þrúður Elísabet, seinni kona systkinabarns síns, Péturs á Stóru-Borg, Kristóferssonar, Finnbogasonar.