Stafrænar endurgerðir

Tímarit.is
Dagblöð og tímarit frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi
Handrit.is
Samskrá íslenskra handrita með mynduðum eintökum
Bækur.is
Stafræn endurgerð íslenskra bóka
Íslandskort.is
Íslandskort og ágrip af kortasögu
Hljóðsafn
Stafræn afrit af tónlist og viðtöl

Gagnasöfn

Skemman
Safn námsritgerða og rannsóknarita
Rafhlaðan
Rafrænt varðveislusafn
Vefsafnið
Íslenskir vefir frá 1996 til dagsins í dag
Leitir.is
Samleit í gagnasöfnum og samskrá bókasafna
Finna tímarit
SFX-leit að tímaritum í áskrift safnsins
Hvar.is
Landsaðgangur að tímarita- og gagnasöfnum
Þýðingar úr íslensku
Leit að þýðingum úr íslensku í Leitir.is

Guðbrandur Vigfússon

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Guðbrandur Vigfússon

Parallel form(s) of name

Standardized form(s) of name according to other rules

Other form(s) of name

Identifiers for corporate bodies

Description area

Dates of existence

13. mars 1827 - 31. janúar 1889

History

Doktor í háskólanum í Oxford. Tökubarn á Kleifum, Garpsdalssókn, Barð. 1835. Skólasveinn í Skólanum, Bessastaðasókn, Gull. 1845.

Foreldrar hans voru Vigfús Gíslason (1798-1867) gullsmiður í Galtardal á Fellsströnd, og kona hans Halldóra Gísladóttir (1793-1866) frá Breiðabólstað á Skógarströnd, sonardóttir Ólafs Gíslasonar biskups í Skálholti.

Guðbrandur var tekinn í Bessastaðaskóla 1844, stúdent úr Reykjavíkurskóla 1849. Fór sama ár í Kaupmannahafnarháskóla og lagði þar stund á málfræði, einkum íslensk fræði, en tók ekki próf.

Guðbrandur var styrkþegi Árnasafns 1856-1866 og var í stjórn Nýrra félagsrita 1858-1864. Hann var í Noregi 1854 og Þýskalandi 1859, og skrifaði fróðlegar frásagnir af þeim ferðum (sjá Ný félagsrit 1855 og 1860). Sú fyrrnefnda var gefin út á norsku árið 1990.

Árið 1864 fluttist Guðbrandur til Englands, var fyrst tvö ár í Lundúnum, en fluttist svo til Oxford 1866, og bjó þar til æviloka. Fyrsta áratuginn á Englandi vann Guðbrandur að útgáfu á Íslensk-enskri orðabók, sem kennd er við hann og Richard Cleasby, en Konráð Gíslason hafði einnig unnið talsvert að undirbúningi hennar í Kaupmannahöfn. Bókin kom út í heftum á árunum 1869-1874, og var því lokið á þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar. Þessi orðabók hefur í meira en öld verið mikilvægasta hjálpartæki enskumælandi manna við nám í íslensku. Í framhaldi af orðabókinni gaf hann út Icelandic Prose Reader, 1879.

Eftir að vinnu við orðabókina lauk fékkst Guðbrandur við kennslu og fræðistörf. Um tíma var hagur hans fremur þröngur, en árið 1884 varð hann kennari (reader) í norrænum fræðum við Háskólann í Oxford og hélt þeirri stöðu til dauðadags. Þar kynntist hann ýmsum þekktum menntamönnum, sem hrifust af lærdómi hans. Hann var talsverður málamaður og talaði góða ensku með sterkum íslenskum hreim.

Eftir Guðbrand liggur geysimikið í ritstörfum, einkum fornritaútgáfur. Hann var óvenju hugmyndaríkur og snjall textafræðingur. Traustustu verk hans eru frá árunum í Kaupmannahöfn, þar sem hann starfaði mikið með Jóni Sigurðssyni. Þó að dvölin á Englandi væri að mörgu leyti örvandi fyrir hann, þá galt hann þess að þar var hann fjarri frumheimildum þeirra rita sem hann fékkst við. Treysti hann þá oft á sitt ótrúlega minni, og ýmsar uppskriftir sem hann hafði gert þegar hann vann á Árnasafni. Gætir þess mest í síðustu ritum hans, einkum Origines Islandicae, sem gefið var út að honum látnum, og hefur ekki verið fulllokið frá hans hendi.

Meðal þess sem Guðbrandur vann að í Oxford voru Orkneyinga saga og Hákonar saga, sem hann gaf út í hinu þekkta heimildasafni um sögu Bretlandseyja: Rolls series. Með þeim fylgdu Saga Magnúsar Eyjajarls og brot úr Sögu Magnúsar lagabætis. Þessi rit voru einnig birt í enskri þýðingu George Webbe Dasents. Alls voru þetta fjögur bindi, sem komu út á árunum 1887-1894. Einnig gaf hann út Sturlunga sögu í tveimur bindum, og er í inngangsritgerð hans að þeirri útgáfu mjög gott yfirlit um íslenskar fornbókmenntir og varðveislusögu þeirra, ritað af mikilli innlifun.

Guðbrandur varð M.A. 1871, heiðursfélagi Vísindafélagsins í München 1873, heiðursdoktor við Uppsalaháskóla 1877, riddari af Dannebrog 1885 og heiðursfélagi í Vísindafélaginu í Kristjaníu 1887.

Guðbrandur var ókvæntur og barnlaus. Hann var bróðir Sigurðar Vigfússonar fornfræðings.

Places

Kleifar, Garpsdalssókn, Barðastrandasýsla
Oxford
Kaupmannahöfn
London

Legal status

Functions, occupations and activities

Doktor
Málfræðingur
Fræðimaður

Mandates/sources of authority

Internal structures/genealogy

General context

Relationships area

Control area

Description identifier

GudVig001

Institution identifier

Rules and/or conventions used

Status

Level of detail

Dates of creation, revision and deletion

Elsa Ósk Alfreðsdóttir. Skráð 20.11.2015

Language(s)

Script(s)

Sources

Æviágrip af wikipediu: https://is.wikipedia.org/wiki/Gu%C3%B0brandur_Vigf%C3%BAsson

Páll Eggert Ólason. 1949. Íslenzkar æviskrár. 2. bindi. F-Í. Bls. 114: http://baekur.is/bok/000306940/2/118/Islenzkar_aeviskrar_fra_Bindi_2_Bls_118

Maintenance notes