Published
Gögnum frá Björgu Einarsdóttur er skipt í þrjá flokka: A1. Kvennafrí - aðdragandi, A2. Kvennafrí - framkvæmd og A3. Kvennafrí - frágangur.
Ræða haldin á Eystrarsaltsvikunni 1973.
Framkvæmdanefnd september 1975 (enska)
Tilnefndir fulltrúar í samstarfsnefnd
Bráðabirgða- og áheyrnarfulltrúar
Listar yfir kynningarhóp, landsbyggðarhóp, fjáröflunarhóp, fundar- og dagskrárhópur, fjölmiðla- og dagskrárhópur.
Jafnréttisnefnd stúdentaráðs (3 blöð)
Einingarsamtök kommúnista (Marx-Lenínistar) - EIK (m-l) (1 blað)
Fædd að Efri-Steinsmýri í Vestur-Skaftafellssýslu 8. ágúst 1921, dáin 26. apríl 1994. Föðursystir Árna Magnússonar alþingismanns og ráðherra. Foreldrar: Bjarnfreður Jóhann Ingimundarson (fæddur 13. september 1889, dáinn 13. september 1964) bóndi þar og kona hans Ingibjörg Sigurbergsdóttir (fædd 3. nóvember 1893, dáin 20. júlí 1945) húsmóðir. Maki 1 (28. júlí 1944): Anton Júlíus Guðjónsson (fæddur 20. ágúst 1907, dáinn 15. september 1991) sjómaður og smiður. Þau skildu. Foreldrar: Guðjón Þorleifsson og 1. kona hans Anna Hróbjartsdóttir. Maki 2 (10. október 1968): Runólfur Guðsteinn Þorsteinsson (fæddur 10. október 1918) bóndi. Foreldrar: Þorsteinn Einarsson og kona hans Guðrún Guðjónsdóttir. Börn Aðalheiðar og Antons: Ingigerður (1945), Steinunn Birna Magnúsdóttir (ættleidd, 1947), Hlynur Þór (1949), Hlynur Þór (1952), Guðmundur Bergur (1956). Verkakona og húsmóðir í Vestmannaeyjum og Reykjavík. Húsmóðir í Köldukinn í Holtum, Rangárvallasýslu, 1963–1974. Formaður Verkakvennafélagsins Snótar í Vestmannaeyjum 1945–1949. Formaður Starfsmannafélagsins Sóknar í Reykjavík 1976–1987. Í miðstjórn ASÍ frá 1980. Í stjórn Sósíalistafélags Vestmannaeyja. Í nefnd um málefni aldraðra og til að semja ný framfærslulög. Í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs 1987–1992. Í bankaráði Búnaðarbankans 1990–1993. Alþingismaður Reykvíkinga 1987–1991 (Borgaraflokkur). Ævisaga hennar: Lífssaga baráttukonu, var skráð af Ingu Huld Hákonardóttur (1986).
Ljósrit.
Um tilgang kvennafrídagsins á íslensku, ensku, dönsku, norsku og sænsku. Handrit að sænsku liggur með.
Fimm vélrituð blöð, eitt handskrifað blað.
Aukaeintökum eytt.
Forsíða 19. júní 1976. - Póstkort og umslag. - Prentmót. - Límmiðar með merki dagsins. - Ætimynd [e. etching] eftir Ragnheiði Jónsdóttur gerð árið 1976: "24th of October"
• Fundarboð og fundargerðir varðandi frágang framkvæmdanefndar um kvennafrí
• Tillögur um ráðstöfun afgangstekna kvennafrísnefndarinnar
• Tillögur um framtíðarstarf
• Listi yfir fréttamenn frá útlöndum vegna kvennafrísins 24. okt. 1975
• Ræða Bjargar Einarsdóttur frá lokafundi framkvæmdanefndar um kvennafrí 28. mars 1976 að Hótel Sögu
• Ræða Önnu Sigurðardóttur frá lokafundi framkvæmdanefndar um kvennafrí 28. mars 1976 að Hótel Sögu
Fæddist á Hvítárbakka í Borgarfirði 5. des. 1908, d. í Reykjavík 3. jan. 1996.
Foreldrar: Sigurður Þórólfsson, skólastjóri, og kona hans Ásdís M. Þorgrímsdóttir.
Giftist Skúla Þorsteinssyni. Þau eignuðust þrjú börn, Önnu, Ásdísi og Þorstein. Bjuggu á Eskifirði og í Reykjavík.
Anna lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Tók virkan þátt í starfi kvenfélaga og lagði kvennabaráttunni margháttað lið. Stofnaði Kvennasögusafn Íslands 1. janúar 1975 og var forstöðumaður þess meðan hún lifði. Heiðursdoktor við H.Í. 1986 fyrir brautryðjendastarf í íslenskum kvennarannsóknum.
Ritstörf: Vinna kvenna á Íslandi í 1100 ár (1985), Allt hafði annan róm áður í páfadóm (1988).