Published
Eitt bréf.
Engu hefur verið eytt.
10. desember 1969 afhenti Sigfús M. Johnsen bréf úr fórum eiginkonu sinnar, Jarþrúðar Pétursdóttur, en hún var var bróðurdóttir Jarþrúðar Jónsdóttur. Sigfús hringdi svo 16. desember og vildi leggja áherslu á að ekki væri um gjöf að ræða heldur afhendingu til könnunar. 18. desember fór Grímur Helgason, forstöðumaður handritadeildar, til Sigfúsar og sýndi honum umbúnað bréfanna. Leist honum honum vel á og vildi láta þau vera áfram á Landsbókasafni og afhenti enn fremur bréf og kort til viðbótar.
Grímur fór aftur til Sigfúsar 27. júlí 1970 og efhenti hann þá 11 bréf til viðbótar - frá séra Matthíasi til Jarþrúðar.
Allt var þetta afhent Sigfúsi aftur á árinu 1971 en 8. apríl 1972 keypti safnið þessi bréf og fleiri af honum.
Ekki er von á viðbótum.
Bréfin voru í fórum Jarþrúðar Pétursdóttur (1890-1969).
Lbs 319 fol. M.a. eru þar tvö bréf frá Pétri Péturssyni biskupi til Brynjólfs Péturssonar. http://handrit.is/is/manuscript/view/Lbs02-0319
Lbs 1934 4to. Sendibréf til Jóns Péturssonar dómsstjóra. M.a. eru þar 38 bréf frá Brynjólfi til Jóns.
Lbs 32 NF - Jarðþrúður Jónsdóttir: Bréfasafn
Lbs 400 NF - Jarþrúður Pétursdóttir Johnsen: Bréfasafn
Lbs 401 NF - Sigfús M. Johnsen: Bréfasafn
Lbs 402 NF - Jón Pétursson: Bréfasafn
Lbs 403 NF - Jóhanna Soffía Bogadóttir: Bréfasafn
Lbs 405 NF - Helga Skúladóttir: Bréfasafn
Safnið er opið.
Skv. reglum Landsbókasafns um ljósritun og myndun.