Reference code
Title
Date(s)
Level of description
Extent and medium
Name of creator
Biographical history
Fæddur á Hofi í Álftafirði 8. september 1826, dáinn 19. nóvember 1884. Foreldrar: Jón Bergsson (fæddur 9. nóvember 1798, dáinn 16. ágúst 1843) prestur þar og kona hans Rósa Brynjólfsdóttir (fædd 8. október 1802, dáin 2. júní 1856) húsmóðir, systir Sigurðar Brynjólfssonar alþingismanns. Mágur Guttorms Vigfússonar alþingismanns á Arnheiðarstöðum og tengdafaðir Sigfúsar Árnasonar alþingismanns. Maki (19. júní 1853): Ragnheiður Jónsdóttir (fædd 24. júní 1829, dáin 11. ágúst 1921) húsmóðir. Foreldrar: Jón Salómonsson og kona hans Sigríður Benediktsdóttir. Börn: Rósa Jóhanna Sigríður (1854), Jónína Kristín Nikólína (1856), Jóhanna Kristjana (1858), Gísli (1861), Jóhanna (1863), Kristín (1865), Sigríður (1868), Ingibjörg (1871).
Stúdentspróf Lsk. 1848. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1850.
Var kennari í Nesi við Seltjörn eitt ár og eitt ár í Hjálmholti, þar jafnframt sýsluskrifari. Fékk Reynistaðarklaustursprestakall 1852, vígður 9. maí, fór þangað ekki, en var prestur í Vestmannaeyjum frá 1852 til æviloka (aðstoðarprestur til 1858).
Sýslunefndarmaður Vestmannaeyjasýslu 1874–1884. Stofnaði Bindindisfélag Vestmannaeyja 1864 og var formaður þess til dauðadags.
Alþingismaður Vestmanneyinga 1859–1864. Kom ekki til þings 1861.
Séra Brynjólfur lét sér mjög annt um hagsmuna- og framfaramál Vestmannaeyinga. Hann gerðist bindindismaður á skólaárum sínum og var það alla ævi. Drykkjuskapur var mikill í Vestmannaeyjum þegar hann gerðist þar prestur enda brennivín ódýrt á þeim tíma og miklar staupagjafir í hinum dönsku selstöðuverslunum. Gekkst hann árið 1864 fyrir stofnun bindindisfélags í Vestmannaeyjum, ásamt þáverandi sýslumanni Bjarna E. Magnússyni. Varð félagið mjög fjölmennt miðað við fólksfjölda og bar góðan árangur.
Árið 1862 var hann forvígismaður að stofnun Lestrarfélags Vestmannaeyja ásamt þeim Bjarna E. Magnússyni sýslumanni og J. P. T. Bryde, kaupmanni. Nafni félagsins var síðar breytt í Bókasafn Vestmannaeyja og starfar það enn í dag og er eitt af elstu og stærri bókasöfnum í landinu. Ennig var séra Brynjólfur kosinn í fyrstu stjórn Skipaábyrgðarfélags Vestmannaeyja, en árið 1907 var nafni þess breytt í Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja.
Repository
Immediate source of acquisition or transfer
Scope and content
Appraisal, destruction and scheduling
Accruals
System of arrangement
Conditions governing access
Conditions governing reproduction
Language of material
Script of material
Language and script notes
Physical characteristics and technical requirements
Finding aids
Existence and location of originals
Existence and location of copies
Related units of description
Related descriptions
Alternative identifier(s)
Subject access points
Place access points
Name access points
- Brynjólfur Jónsson (Creator)