Samtökin voru stofnuð í kjölfar þess að ríkisstjórn lagði fram frv. til laga um fóstureyðingar í des. 1974 þar sem ekki var ákvæði um heimild til fóstureyðingar að ósk konu. Fylgismenn þess málstaðar gengust fyrir stofnun hinna þverpólitísku samtaka sem hér eru nefnd. Stofnfundur var haldinn á Hótel Sögu 24. mars 1975 og voru stofnfélagar 329. Samtökin hafa ekki verið lögð formlega niður
Stúdentspróf MR 1971. B.Sc.-próf í líffræði HÍ 1975. Nám í þýsku og fjölmiðlun við Freie Universität í Vestur-Berlín 1976-1977.
Kenndi líffræði með námi í MH og MR. Blaðamaður, þingfréttamaður og um tíma fréttastjóri við Þjóðviljann 1977–1987. Framkvæmdastjóri laxeldisstöðvarinnar Hafeldis í Straumsvík 1987–1989. Vann við gerð einkaleyfisumsókna og skráningu vörumerkja 1989–1991. Blaðamaður í lausamennsku 1991-1996. Upplýsingafulltrúi Samtaka um kvennaathvarf 1994–1995 og framkvæmdastjóri ráðstefnu norrænna kvennaathvarfa á Íslandi í nóvember 1995. Útgáfustjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands 1996-2007 og ritstjóri Náttúrufræðingsins 1996-2006. Heilbrigðisráðherra 1. okt. 2009 til 2. sept. 2010.
Í stjórn ABR, í miðstjórn og framkvæmdastjórn AB af og til 1973–1998. Varaborgarfulltrúi 1978–1986. Í umhverfisráði 1978–1986, formaður þess um skeið. Í jafnréttisnefnd 1982–1986. Sat í nefnd um byggingu Náttúruhúss í Reykjavík 1989–1990. Formaður nefndar um áhættumat Reykjavíkurflugvallar 1990-1991. Tók þátt í stofnun Reykjavíkurlistans 1994 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á vegum hans frá upphafi til enda. Í stjórn Sorpu 1994–1998. Í nefnd um mótun orkustefnu Reykjavíkurborgar 2002–2003, í stjórn Landsvirkjunar 2003-2006. Í Þingvallanefnd 2009-2013.
Alþm. Reykv. s. 2007-2009, alþm. Reykv. n. 2009-2013 (Vg.).
Vþm. Reykv. nóv.-des.1987 (Alþb.), vþm. Reykv. s. nóv.-des. 2003, nóv.-des. 2004, nóv. 2006 (Vg.).
Heilbrigðisráðherra 2009-2010.
5. varaforseti Alþingis 2009 og 2010-2012.
Formaður þingflokks Vg. 2012-2013.
Heilbrigðis- og trygginganefnd 2007, heilbrigðisnefnd 2007-2009, iðnaðarnefnd 2007-2009, allsherjarnefnd 2009 og 2010-2011, viðskiptanefnd 2009 (form.) og 2010-2011 (form. 2011), kjörbréfanefnd 2009-2011, efnahags- og skattanefnd 2009 og 2010-2011, umhverfisnefnd 2010-2011, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2011-2013, velferðarnefnd 2011-2012 (form. 2011-2012), umhverfis- og samgöngunefnd 2012-2013.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009 og 2010-2013.
Heimild: http://www.althingi.is/altext/cv.php4?nfaerslunr=676
Published
Full
Final
IS
IcReLIH
Safnið inniheldur stóra bók er geymir nöfn stofnfélaga, blaðaúrklippur, fréttatilkynningar, greinar og ljósrit af greinum
Allt í einni öskju:
- Forvitin rauð, janúar 1974
- Alþingistíðindi, 8. hefti 1974-75, umræður 27.-30. janúar
- Bréfsefni og merkt umslög samtakanna
- Bók er geymir nöfn stofnfélaga
-Ýmislegt viðvíkjandi stofnfundinum
- Fréttatilkynning um stofnfund
- Erindi Álfheiðar Ingadóttur í útvarp (þátturinn „Um daginn og veginn)
- Álfheiður Ingadóttir: Um hvað snýst málið? (handrit)
- Ræða flutt á stofnfundinum (Álfheiður Ingadóttir)
- Ræða um málið (etv erindi í útvarp). Óþekktur
- Blaðaúrklippur
- Athugasemdir Baráttusamtakanna
- Bréf til þingmanna (teikning og skrif aftaná)
- Tillaga til ályktunar frá stjórn Stúdentaráðs H.Í.
- Bréf til formanns heilbrigðis- og trygginganefndar n.d. Alþingis, 2. apríl 1975
- Bréf frá nefnd er endurskoðaði lög um fóstureyðingar, 30 jan. 1974
- Yfirlýsing kvenna sem hafa gengist undir fóstureyðingu, óundirritað
Engu var eytt
Álfheiður Ingadóttir (f. 1951)
Viðbóta er ekki vænst
Gögnin voru í fórum Álfheiðar Ingadóttur fram að afhendingu 30. júní 2011.
Notendur eru bundnir af ákvæðum Höfundarlaga nr. 73/1972.