Stafrænar endurgerðir

Tímarit.is
Dagblöð og tímarit frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi
Handrit.is
Samskrá íslenskra handrita með mynduðum eintökum
Bækur.is
Stafræn endurgerð íslenskra bóka
Íslandskort.is
Íslandskort og ágrip af kortasögu
Hljóðsafn
Stafræn afrit af tónlist og viðtöl

Gagnasöfn

Skemman
Safn námsritgerða og rannsóknarita
Rafhlaðan
Rafrænt varðveislusafn
Vefsafnið
Íslenskir vefir frá 1996 til dagsins í dag
Leitir.is
Samleit í gagnasöfnum og samskrá bókasafna
Finna tímarit
SFX-leit að tímaritum í áskrift safnsins
Hvar.is
Landsaðgangur að tímarita- og gagnasöfnum
Þýðingar úr íslensku
Leit að þýðingum úr íslensku í Leitir.is

Safn KSS 0004 - Anna Sigurðardóttir. Einkaskjalasafn.

Tilvísunarkóði

IcReLIH KSS 0004

Titill

Anna Sigurðardóttir. Einkaskjalasafn.

Dagsetning(ar)

  • 1908-1996 (Creation)

Þrep lýsingar

Safn

Umfang og efnisform

46 skjalaöskjur.

Nafn skjalamyndara

Anna Sigurðardóttir (5. desember 1908 - 3. janúar 1996)

Lífshlaup og æviatriði

Fæddist á Hvítárbakka í Borgarfirði 5. des. 1908, d. í Reykjavík 3. jan. 1996.
Foreldrar: Sigurður Þórólfsson, skólastjóri, og kona hans Ásdís M. Þorgrímsdóttir.
Giftist Skúla Þorsteinssyni. Þau eignuðust þrjú börn, Önnu, Ásdísi og Þorstein. Bjuggu á Eskifirði og í Reykjavík.
Anna lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Tók virkan þátt í starfi kvenfélaga og lagði kvennabaráttunni margháttað lið. Stofnaði Kvennasögusafn Íslands 1. janúar 1975 og var forstöðumaður þess meðan hún lifði. Heiðursdoktor við H.Í. 1986 fyrir brautryðjendastarf í íslenskum kvennarannsóknum.
Ritstörf: Vinna kvenna á Íslandi í 1100 ár (1985), Allt hafði annan róm áður í páfadóm (1988).

Varðveislustaður

Um aðföng eða flutning á safn

Umfang og innihald

Safnið nær yfir 46 skjalaöskjur

Grisjun, eyðing og áætlun

Viðbætur

Skipulag röðunar

Öskjur nr. 24-27: Allt hafði annan róm áður í páfadóm (handrit og pappírar)
Öskjur nr. 28-31: Vinna kvenna á Íslandi í 1100 ár (handrit og pappírar)
Öskjur nr. 32-33: Úr veröld kvenna (ófullgert handrit að bók)
Öskjur nr. 35-41: Anna Sigurðardóttir (ræður, viðtöl, blaðagreinar o.fl.)
Pappírar um og eftir Önnu Sigurðardóttur. Ræður, viðtöl, fyrirspurnir, útvarpserindi, blaðagreinar o.fl. Askja nr. 91
Öskjur nr. 108-111: Um konur og kvenréttindi í einstökum löndum/álfum. Bréf, fréttabréf, blaðagreinar og fl. safnað af Önnu Sigurðardóttur (öskjum bætt við í október 2016)
Askja nr. 123: Skálholtsráðstefna 1981 og Kungälv 1979 (öskju bætt við í október 2016)
Öskjur nr. 135, 136, 137, 140, 141, 142, 143, 144

Öskjur A1: Bréf til Önnu Sigurðardóttur, 9 öskjur
Öskjur A2: Bréf frá Önnu Sigurðardóttur, 4 öskjur

Innihald:
24.-27. Allt hafði annan róm...
Handrit og pappírar vegna bókar Önnu Sigurðardóttur
Allt hafði annan róm áður í páfadóm

28.-31. Vinna kvenna á Íslandi í 1100 ár
Handrit og ýmsir pappírar

32. –33. Úr veröld kvenna
Handrit að bók Önnu Sigurðardóttur: Úr veröld kvenna; Barnsburður. (2 eintök. Þarf að bera saman. Um titilinn, sjá formála að Vinna kvenna í 1100 ár, bls. 15)

34. Ýmsar skrár, flestar samdar af Önnu Sigurðardóttur:
•Ártöl og áfangar í ýmsum myndum
•Ártala-, atburðaskrár unnar upp úr annálum
•Íslenskur efnisorðalisti saminn 26/10 1974
•Rit sem finna má í ýmsar heimildir um sögu kvenna
•Heimildir sem Kvennasögusafn Íslands hefur bent á
•Tímaritaskrá (um 1980)
•Skrá um kvennasögusöfn
•Ýmsar skrár
•Skrá um ritverk Önnu Sigurðardóttur; greinar í blöðum og tímaritum, útvarpsþætti o.fl.

35-41. Anna Sigurðardóttir
Pappírar um og eftir Önnu Sigurðardóttur. Ræður, viðtöl, fyrirspurnir, útvarpserindi, blaðagreinar o.fl.
35.
Minningagreinar, æviferill nokkurra karla og kvenna eftir Önnu, sumt birt:
Einarína Guðmundsdóttir (1885-1965), ÆMMK
Valborg Bentsdóttir sjötug
Skúli Þorsteinsson (1906-1973)
Margrét Guðmundsdóttir (1834-1919)
María Þorsteinsdóttir sjötug
Guðrún Guðmundsdóttir (1849-1931) ÆMMK
Guðrún Sigurðardóttir
Helga Þórdís Jónsdóttir (1874-1957)
Dr. Irmgard Kroner
Ása B. Ásmundsdóttir ljósmóðir (1888-1976) Mbl.
Steinunn Finnbogadóttir sextug
Guðný Guðmundsóttir hjúkrunarkona (1859-1948)
Ásdís Margrét Þorgrímsdóttir (1883-1969)
Þjóðfélagið verður að koma til skjalanna – jafnrétti kvenna og karla, jafnrétti hjóna, v. ár
Saumaskapur húsmæðra, v. ár
Kvennasaga á erlendum tungumálum, samantektir Önnu
Beiðni um útvarpsþáttagerð hjá RÚV
Stutt erindi flutt í samsætum til heiðurs ákv. einstaklingum o.fl.:
• Þakkir til kaupfélagsstjórahjónanna á Eskifirði
• Þakkir til Ólafíu Auðunsdóttur og Þórðar Sigurðssonar á Eskifirði [nf. Ólafía Auðunsdóttir, Þórður Sigurðsson]
• Stutt velfarnaðarorð til Else Míu Einarsdóttur 1978 [nf. Else Mía Einarsdóttir]
• Stutt erindi vegna 40 ára fermingarafmælis Önnu
• Örfá þakkarorð Önnu til Eskfirðinga við brottflutning þeirra Skúla
• Þakkarræða Önnu á Austfirðingamóti 1985
• Anna kynnir Helgu Stene áður en sú síðarnefnda flytur fyrirlestur 1983 [nf. Helga Stene]
• Stuttar þakkir fluttar á landsfundi KRFÍ 1980
• Örfá orð á 60 ára afmælishátíð Ljósmæðrafélags Íslands (þýðinguna sem Anna jafnframt les er að finna í Þýðingum í öskju 37)
• Þakkarorð flutt 1990 á 60 ára afmæli Kvenfélagasambands Íslands
Skattamál
Hér eru ýmsir punktar og erindi Önnu varðandi skattamál hjóna, einnig afrit bréfa sem hún hefur sent einstaklingum varðandi málefnið. Gögnin ná yfir langt tímabil, eða frá því fljótlega upp úr 1950 til níunda áratugarins. Þrætumál innan KRFÍ
Hjónaband – hjúskapur. Flokkað saman af Önnu:
• Hjúskaparlöggjöfin, flutt hjá MFÍK 1965/66
• Fáein orð um hjúskaparlöggjöfina, Melkorka 1961
• Nogle ord om ægteskabslovgivningen, Kvinden og samfundet 1962
• Útvarpsdagskrá KRFÍ 1961
• Réttarstaða kvenna í hjónabandinu, flutt hjá MFÍK 1961
• Fulltrúaráðsfundur KRFÍ 1962: hjúskaparlöggjöfin
• Hvers vegna hjónaskilnaðir, 1972
• Álit hjúskaparlaganefndar KRFÍ 1960
• Bréf til Ármanns Snævarrs og spurningar um hjúskaparlöggjöfina [nf. Ármann Snævarr]
• Några ord om äktenskapslagstiftningen, birt á ísl. í Melkorku 1961
• Leikmannaþankar um fjölskyldulög, 1970
Húsmæður
• Nokkrar ræður haldnar á húsmæðramóti í Berlín, á þýsku.
• Tillaga nefndar um mat á störfum húsmæðra á Landsfundi KRFÍ 1956. Ekki samþykkt. Athugasemdir Önnu.
• Spurningar varðandi heimilisstörf 1954-56. Sett saman með Gallup í huga
• Er húsmóðurstaðan einskisvert starf, sjá grein í Melkorku 3. hefti 1954, 10.árg.
• Húsmóðurstaðan, birt í Húsfreyjunni 1965
• Forskellige vanskeligheder i hjemmet, ½ bls.
• Giftast, hætta að vinna, ræða flutt 1955, birt í 19. júní 1956.
Ríkisborgararéttur. Spurningar til Ragnhildar Helgadóttur, svör o.fl. [nf. Ragnhildur Helgadóttir]
36.
Erindi, ræður og greinar. Anna Sigurðardóttir
1946
Var gleðin sönn? Hugleiðingar 17. júní 1946, birtist í Melkorku 1946
1947
Uppkast að löngu bréfi til formanns KRFÍ Sigríðar J. Magnússon. Fjallar um skattamál, jafnrétti og löngun Önnu til að gerast félagi í KRFÍ [nf. Sigríður J. Magnússon]
1949
Um daginn og veginn í kvennatíma KRFÍ, friðarmál/jafnrétti, flutt 2. júní ‘49
1952
Athugasemd við útdrátt fundargerðar Landsfundar KRFÍ 1952, uppkast að bréfi sem aldrei var sent
KRFÍ og landsfundurinn 1952, erindi hjá Sambandi austfirskra kvenna 1952
1954
Ávarp flutt forsetafrú Dóru Þórhallsdóttur við heimsókn forsetahjónanna til Eskifjarðar 13. ágúst 1954 [nf. Dóra Þórhallsdóttir]
Um Sameinuðu þjóðirnar og sérstofnanir þeirra, handskrifað.
Melkorka 10 ára
1955
Alþjóðasamband k venna, frásögn af fundi í Napólí (viðtal AS), birt í Melkorku
1957
Erindi um Brúðuheimili Ibsens flutt fyrir norræna gesti á Eskifirði 1957
1959
Úr útvarpserindi 25. september 1959, dagskrá MMK
Erindi um jafnréttismál flutt 25. sept. ´59, dagskrá MMK
Við fáum ekki frið í heiminum fyrr en helmingur þeirra sem stjórna eru konur, viðtal við Önnu í Þjóðviljanum
Giftast - hætta að vinna, erindi flutt ´55
1963
Erindi hjá KRON 1963
1964
Frá norræna fundinum á Hotel Beaulieu í Danmörku í sept. 1964, flutt á fundi KRFÍ
Innlegg Önnu á norræna fundinum á dönsku: Vi gör status, Kvinder på arbejdspladserne, Moderat eller radikal kvindeideologi, Hvad vil vi?
Á landsfundi KRFÍ 1964, erindi um hjúskaparlög/sameign hjóna
Jafnréttismál, erindi á fundi í janúar ´64
Jafnrétti - misrétti, flutt á ýmsum fundum 1964 og birt í 19. júní sama ár.
1965
Nýjir þjóðhættir og fjölskyldulíf, flutt hjá Kvenfélagi Sósíalista og KRFÍ
1966
Kvenréttindi – karlréttindi, útvarpserindi 19. júní 1966
Jafnréttismál á erlendum vettvangi, 19. júní 1966
1968
• Í tilefni mannréttindaársins 1968, erindi flutt hjá kvenfélagi Selfoss 1968 og MFÍK.
• Þjóðfélagsleg staða íslenskra kvenna í framtíðinni. Hugleiðingar í sambandi við alþjóða mannréttindaárið 1968, flutt hjá MFÍK 1968
• Alþjóðamannréttindaár Sameinuðu þjóðanna og væntanleg stefnuskrá Kvenréttindafélags Íslands, flutt á félagsfundi KRFÍ 1968.
• Hagur kvenna á alþjóðamannréttindaárinu 1968, flutt hjá Kvenfélagi Sósíalista og Sókn 1968.
1969
Erindi flutt að Bifröst á Húsmæðraviku SÍS 1969
1970
• Menntun og skólaganga íslenskra kvenna. Í tilefni alþjóðamenntaársins 1970, flutt á fundi KRFÍ 1970, síðar flutt í útvarpi.
Kvenréttindakerlingar og rauðsokkar, erindi flutt á fundi Rauðsokkahreyfingarinnar í Norræna húsinu 19. október 1970 (sjá öskjur nr. 203-217 um Rauðsokkahreyfinguna)
Women´s use of the vote, flutt (ísl.) á fundi KRFÍ
Svar við spurningum Morgunblaðsins varðandi spillta æsku
1971
Guðrún Ósvífursdóttir að Laugum í Sælingsdal, flutt í útvarpsþætti um orlof húsmæðra
Hallveig Fróðadóttir og frænkur hennar í ellefu hundruð ár, efnisyfirlit í ímyndaðri bók í janúar 1971 í tilefni 1100 ára Íslandsbyggðar, einnig afrit bréf Rauðsokkahreyfingarinnar, lagt fram á fundi Kvennaársnefndar 1975, að Kvennasögusafni verði veittur styrkur til að gefa út „sögu íslenskra kvenna”.
Um réttindi karla og kvenna, flutt hjá Kaupfélagi Rangæinga í Njálsbúð 1971
1972
Forsörgerbegrepet i nordisk lovgivning, erindi flutt á norrænu kvenréttindafélagaþingi í Voksenås í
Noregi
Ræða á brúðkaupsdegi Önnu Skúladóttur, dóttur Önnu, 22. júlí 1972. Fjallar um brúðkaupssiði. Einnig
fleiri brúðkaupsræður [Anna Skúladóttir]
Jafnrétti þegnanna, um fyrirlestra Helge Stene og Inger Margrete Pedersen í Norræna húsinu 1972. Staða verkakvenna í þjóðfélaginu fyrr og nú, erindi flutt hjá Sókn 1972
1973
Snorri í Reykholti, Herdís og Hallveig, húsmæðraorlof í Reykholti
1974
Athugasemd varðandi minnispeninga vegna 1100 ára Íslandsbyggðar
Um undirbúnming að stofnun Kvennasöguafns Íslands, flutt hjá Kvenfélag Sósíalista
1975
Alþjóðakvennaárið 1975, flutt hjá Bandalagi kvenna í Hafnarfirði
Í tilefni kvennaársins 1975, flutt hjá Kiwanisklúbbnum Eldey í Kópavogi
Kvennasögusafn Íslands, flutt í húsmæðraorlofi
Kvennasögusafn Íslands, Alþjóðakvennaárið 1975, flutt hjá Mæðrafélaginu
Bráðum kemur sólin upp yfir jökulinn
1976
Kvennaársnefndin og Kvennasögusafnið, þakkir vegna gagna og peningagjafar nefndarinnar
Kvennasögusafn Íslands og kvennasaga, flutt hjá Félagi borgfirskra kvenna
Kvennasamtök á Íslandi, samantekt vegna fyrirspurnar frá Women´s Center Library í Kaliforníu
1977
Á aðalfundi KRFÍ 1977. Jafnréttismál
Kvennasýning Norðurlandaráðs, erindi á Hrafnagili í ágúst 1977
Kvenfrelsisbarátta - menntun og mannréttindi, grein í Þjóðviljanum
1978
Sýning Norðurlandaráðs um sögu kvenna í tilefni kvennaársins, flutt á þremur stöðum 1977-1978
Spurningar Helgu Valtýsdóttur og svör Önnu Sigurðardóttur í Gestaglugga Útvarpsins 1978 [nf. Helga Valtýsdóttir]
1979
Frá Kvennasögusafni Íslands, flutt á fundi Sagnfræðingafélags Íslands
1981
Stuttur formáli að erindi um ljósmæður, flutt hjá kvenfélagi Neskirkju
1982
Örstutt minnisblað um jafnréttismál, kvarlveldi
1984
Á fundi Samtaka um kvennaathvarf
1985
Erindi Önnu á ráðstefnunni Íslenskar kvennarannsóknir 1985, í Odda Háskóla Íslands.
37.
• Þýðingar Önnu Sigurðardóttur. Gamansögur, ádeilur, stutt leikrit
• Aðstöðunefnd íslenskra kvenna sendir tilmæli til Alþingis um að samþykkja þingsálytktunartillögu um jafnrétti þegna í íslensku þjóðfélagi (Anna Sigurðardóttir o.fl.)
• Hugmyndir að rannsóknum og/eða verkefnum, m.a. uppkast að bréfi sem aldrei var sent þar sem Anna fer þess á leit við félagsmálaráðuneytið að það styrki útgáfu bæklings um réttarstöðu kvenna á Íslandi. Einnig frásögn eða hluti frásagnar af búskaparárum Önnu á Eskifirði (húsmóðir með ung börn og í lélegu húsnæði)
• Gögn Önnu frá því hún var í bréfaskóla SÍS 1950. Verkefni um fundarstjórn og fundareglur
• Einkunnir og verkefni Önnu í Kvennaskólanum í Reykjavík 1926, fullnaðarpróf 1922 [nf. Kvennaskólinn í Reykjavík]
• Margvísleg gögn úr möppu merkt „Uppköst og óhreinritað efni”. Um er að ræða hluta úr ræðum, greinum og athugasemdum varðandi jafnréttismál, einkum réttindi giftra kvenna.
M.a. „undirbúið” símtal við Kristínu L. Sigurðardóttur þingkonu, systur Önnu, um jafnréttismál. Snertir ákveðið frumvarp R.H. (Ragnhildur Helgadóttir?)
• Kóróna sköpunarverksins. Samfelld skemmtidagskrá, tillaga um úrvarpsþátt. Send RÚV, ekki svarað
• Listi yfir ritsmíðar Önnu 1950-1980. Listi yfir ritverk Önnu á prenti 1980-1988.
• Listi yfir Alþjóðasamþykktir Sameinuðu þjóðanna og stofnana þeirra o.fl.
• Kveðskapur Önnu; nokkrar rímaðar vísur og órímuð ljóð (skv. hennar orðum)
• Erindi um fæðingar, ódag- og ársett
• Sneplar varðandi útvarpsdagskrá KRFÍ 1962
Ýmsir pappírar settir saman í örk:
• Bréf til orðuritara vegna Valborgar Bentsdóttur [Valborg Bentsdóttir]
• Snúningur Önnu á Fósturlandsins freyju yfir á karla
• Snepill þar sem fram kemur hve hugmyndir Önnu áttu litlu fylgi að fagna innan KRFÍ
• Snepill með útskýringu á jafnrétti og jafnstöðu fyrir Morgunblaðið
• Blað með svörum varðandi Kvennasögusafnið og jafnréttismál
• Afrit af bréf ritnefndar Konur skrifa til Sögufélags þar sem farið er fram á samstarf við félagið
o.fl. blöð og sneplar sem erfitt er að skilgreina. Flest tengist kvennasögu á einhvern hátt eða jafnréttismálum
Drög að dagskrá fundar til heiðurs Önnu Sigurðardóttur í tilefni 70 ára afmælis hennar, einnig ræða Sigurveigar Guðmundsdóttur af sama tilefni. [nf. Sigurveig Guðmundsdóttir]
38-
Sundurlausir pappírar, miðar, kort o.fl. sem snertir Önnu og fjölskyldu hennar. Ekki samfelldar ritsmíðar af hennar hendi. Upplýsingar vegna Kennaratals, Samtíðarmanna og.fl. v. Önnu o.fl
Einnig:
– bréf frá byggðasafnsnefnd Sambands austfirskra kvenna til stjórnar Byggðasafns Austurlands 1957
– Byggðasögunefnd til Önnu; leitað eftir ljósmyndum


  • Fundargerð aðalfundar S.A.K. – AÞ sendi

39.-41.
Handrit Önnu sigurðardóttur, byggt á útvarpserindum og fyrirlestrum, nefnt Trú Hallveigar og Ingólfs, efnisyfirlit til staðar en aðeins um helmingur kaflanna sem nefndir eru:
Ár var alda
Ásynjur ýmsar
Sif
Gerður
Iðunn
Nanna
Skaði
Sigyn
Freyja
Frigg
Æsir
Heimdallur og talan 9 í Eddunum
Fjaðurhamir og farartæki goða
Einnig erindi um ásatrú almennt.
(Nokkur eintök hvers kafla, þarf að bera saman)
Ýmsir pappírar tengdir sögu kvenna (safn til sögu íslenskra kvenna). Stök blöð, erindi og greinar (ekki allt heilt):
•Konur launþegar á Íslandi. Staða kvenna í atvinnulífinu. Sögulegt yfirlit. Pappírar tengdir ASÍ- og BSRB þingum 1975
•Margt smátt gerir eitt stórt eða samtíningur og sitthvað til sögu íslenskra kvenna í 1100 ár. Uppkast/handrit frá 12. febrúar 1974
•Verkakonur á 19. öld (stutt) á Íslandi í 1100 ár (handrit, notað í Vinnu kvenna? )
•Viðtal Önnu við Ragnhildi Einarsdóttur formann verkakvennafélagsins á Eskifirði, 19. júní 1955. [nf. Ragnhildur Einarsdóttir]
•Úr veröld kvenna. Ákvörðunarréttur um hjúskap á gullöld Íslendinga. Erindi flutt hjá Kvenfélagi Neskirkju 21. feb. 1980
•Úr veröld kvenna. Ákvörðunarréttur um hjúskap á gullöld Íslendinga
Erindi flutt í útvarp 13. maí 1980
•Úr veröld kvenna. Heimanfylgja og kvánarmundur. RÚV 21. ágúst 1980
•Vinna, aðallega kvennavinna. Eftir frásögn Guðríðar Guttormsdóttur frá Stöð [nf. Guðríður Guttormsdóttir]
• Veistu þetta? (Fróðleiksmolar) – saman í örk
• Berþóra Skarphéðinsdóttir – saman í örk
• Vinnukonur á 19. öld – saman í örk
Ýmsir pappírar, ekki allt heildstætt – oft aðeins ein bls. eða hluti úr bls.:
• Ávarpstitlar kvenna
• Eru konur ekki menn eða hvað?
•Jafnmenni, jafnræði, jafnstaða
• Kvonfang/kvænast/giftast
• Kvenheiðingi – karlblaðamaður
• Punktar úr Grágás og Jónsbók um fjárforræði kvenna
• Kvennafríið á sænsku
• Inngangur að kafla í ónefnda bók?? Um hvaða kaflar í gömlu lögbókunum eru notaðir
• Útdráttur á ensku af grein Önnu og barnsskírn á miðöldum
• Launamál/jafnrétti
• Athugasemdir vegna samnings um ræstingar
Greinar, erindi og ræður. Sumt e.t.v. ófrágengið og gætu verið vinnuplögg.

91. Anna Sigurðardóttir - ýmislegt
Skyld- og mágafólk Önnu Sigurðardóttur. M.a. Anna Þorsteinsdóttir. Hjónavígsluræða: Guðríður Guttormsdóttir og Þorsteinn Þ. Mýrmann.
Sigurveig Guðmundsdóttir kennari
dr. Ólafía Einarsdóttir - greinar
Kvennasögurannsóknir á Norðurlöndum
Brúðkaup (smáræði)
Úr fórum Þórunnar Magnúsdóttur [Þórunn Magnúsdóttir]

108-111: Um konur og kvenréttindi í einstökum löndum/álfum
108. Noregur, Grænland, Færeyjar, Danmörk, Frakkland
109. Sviss, Svíþjóð, Japan, Írland, Afríka, Tékkóslóvakía, Þýska alþýðulýðveldið, Fawcett Society
110. Sovétríkin, V-Þýskaland, Holland, Álandseyjar, Ítalía (Arcidonna)
111. Sameinuðu þjóðirnar, Ástralía, Kanada, Bandaríkin

123. Skálholtsráðstefna 1981 og Kungälv 1979 (öskju bætt við í október 2016)
• Ýmis gögn vegna Skálholtsráðstefnunnar 1981 um stöðu og kjör kvenna á miðöldum. Erindi Önnu í nokkrum eintökum (með leiðr., þarf að bera saman). Einnig erindi Helga Þorlákssonar [nf. Helgi Þorláksson]. Þátttökulistar o.fl.
• Gögn frá ráðstefnu í Kungälv 1979 þar sem fjallað var um konur á miðöldum. Anna Sigurðardóttir flutti þar erindi. Birt í ritinu: Kvinnans ekonomiska ställning under nordisk medeltid : uppsatser framlagda vid ett kvinnohistoriskt symposium i Kungälv 8-12 oktober 1979 ; red. Hedda Gunneng [och] Birgit Strand (1981)

135. Anna Sigurðardóttir
• Skrár og fleira. Ártöl og áfangar í ýmsum myndum. Einnig samantektir um konur á miðöldum (konur í ritlist o.s.frv.). Líklega pappírar sem tilheyra rannsóknum á konum á miðöldum (nunnuklaustrum?)
136. Anna Sigurðardóttir
• Fæðingarorlof, sjá einnig í ritgerð Önnu Sigurðardóttur í Ljósmæður á Íslandi II.
• Hússtjórn, heimilisstörf, húsmæður. Sundurlausir pappírar. Með var talsvert af blaðaúrklippum um sömu mál. Flutt í úrklippur
• Skrár, samantekt úr blöðum 1974. Skrifað um kvennamálefni. AS
• Íslendingar (konur) erlendis, einkum í Ameríku
137. Anna Sigurðardóttir
• Kvenfélagasamband Íslands. Gögn tengd 30. landsþingi KÍ 1994 þar sem Anna Sigurðardóttir hefur verið meðal boðsgesta. Einnig bréf til hennar frá KÍ þar sem tilkynnt er um kjör hennar sem heiðursfélaga 1990. Með liggur „Ferð til Dýrafjarðar” (1930) skráð hefur Elín Guðmundsdóttir árið 1981 (Kvenfélagið Brautin, Bolungarvík)
• Dagskrá landsþings KÍ 1947 og bréf til héraðssambanda um að safna skýrslum félaga 1949
• Kvenbúningur – klæðnaður – skartgripir á fyrri öldum. Sneplar, minnisblöð og samantektir Önnu Sigurðardóttir. Fremur sundurlaust. Skrifað 1970-71. AS hefur skrifað utan á „hvergi birt”
140. Anna Sigurðardóttir
• Kvenréttindi á Íslandi. Greinar og erindi eftir Önnu Sigurðardóttur, flest á dönsku til birtingar í þarlendum tímaritum eða til flutnings á ráðstefnum
• Kvenréttindi á Íslandi. Efni eftir Önnu Sigurðardóttur á ensku
• Kvenréttindi á Íslandi. Efni eftir Önnu Sigurðardóttur á þýsku
• Kvenréttindafundir á Norðurlöndum. Lítil skrifblokk með athugasemdum Önnu
• Eyðublöð ýmis konar þar sem kynjunum er mismunað, m.a. skattaframtal. AS
• Frímerki (auglýsingar, umslög, kort), íslensk og erlend
• Þýðingar eftir konur (skrá) og íslensk verk þýdd á erlend mál
• Kvennasögusafnið í Árósum. Kvindehistorisk samling
• ”Íslenzkar konur og forsetinn”, grein e. Ingibjörgu Þorgeirsdóttur (ljósrit úr Nýju kvennablaði)
141-142. Anna Sigurðardóttir
Ófrágengið handrit. Líklega það sem Anna hafði í vinnslu síðustu ár ævi sinnar. Virðast vera tveir ósamstæðir þættir saman í einni bók.
• I. Forn lög og frægar konur (17 kaflar)
• II. Læknar góðir. Mannamein og lækningar til forna. (Útvarpserindi frá 1971 (og) tíu kaflar)
143. Anna Sigurðardóttir
• Sambland ýmissa pappíra. M.a. reikningar, margvíslegir sneplar.
144. Anna Sigurðardóttir
• Ýmis sundurlaus gögn; sneplar og athugasemdir um margvísleg mál. M.a. tillögur vegna um merki Kvennasögusafns
• Ljósrit af mynd, úr hollensku riti/blaði þar sem skilja má að Ingibjörg H. Bjarnason sjáist á mynd
• Minnisblöð og sneplar Önnu um menntun kvenna, alþýðufræðslu o.fl.
• Tvær möppur (a-ö) með nöfnum kvenna, einhvers konar æviferilsskrá

Skilyrði er ráða aðgengi

Skilyrði er ráða endurgerð

Tungumál efnis

  • íslenska

Leturgerð efnis

Athugasemdir um tungumál og letur

Umfang og tæknilegar þarfir

Leiðarvísir

Staðsetning frumrita

Staðsetning afrita

Tengdar einingar

Alternative identifier(s)

Efnisorð

Staðir

Nöfn

Lýsinganúmer

IS

Kennimark stofnunar

IcReLIH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Stuðst við ISAD(G)

Staða

Final

Skráningarstaða

Full

Dates of creation revision deletion

Rafræn skráning 31. júlí 2013, og 2. maí 2016.

Tungumál

  • danska
  • enska
  • íslenska
  • sænska
  • þýska

Leturgerð(ir)

Heimildir

Sigríður Th. Erlendsdóttir: "Anna Sigurðardóttir" í Andvari, 200, s. 11-68

Athugasemd skjalavarðar

AS skráði rafrænt

Aðföng

Related subjects

Tengdir einstaklingar og stofnanir

Tengdir staðir