(Aðalheiður) Nanna Ólafsdóttir stundaði nám við Listdansskóla Þjóðleikhússins frá níu ára aldri uns hún hélt til London 1965 til náms í Royal Ballet School. Þá var hún tvö ár við ballettakademíuna í Leningrad og lauk þaðan prófi. Nanna var einn af stofnendum Íslenska dansflokksins og listdansstjóri hans á árunum 1980-87. Meðal dansverka hennar má nefna Largo y Largo, Dafnis og Klói, Tíminn og vatnið, Féhirsla vors herra, Ögurstund, Turangalia og barnaverkið Auðunn og Ísbjörninn sem frumsýnt var á Listahátíð árið 2000. Nanna dansaði einnig með erlendum dansflokkum auk þess íslenska sem og kenndi við Listdansskóla Íslands í mörg ár. Heimild: http://dance.is/members/adalheidur-nanna-olafsdottir/