Tilvísunarkóði
Titill
Dagsetning(ar)
- 26.11.2013 (Accumulation)
Þrep lýsingar
Umfang og efnisform
15. mars 1990. Haraldur Jóhannsson kom með hljóðsnældu með viðtölum við Tryggva Helgason frá Akranesi (birt í Þjóðviljanum) og Brynjólf Bjarnason (birt í Lesbók Morgunblaðsins). Viðbót (18/08/2009): Fleiri spólur afhentar 9.11.1993. Ein merkt Jón frá Pálmholti. Þrjár merktar A... Guðmundsson. Ein spóla með viðtali við Guðjón Jónsson form. járniðnaðar¬manna (aðf. 1. febrúar 1994).
Nafn skjalamyndara
Lífshlaup og æviatriði
Fæddur í Reykjavík, stundaði nám í Khafnarhásk. 1946-1947, lauk prófi í hagfræði frá háskóla í London 1951, MS þaðan 1956, fyrirlesari í hagfræði við háskóla í Malaga 1964-1968 og í Jóhannesarborg 1969-1971. H. ritaði um hagfræðileg mál á íslensku og ensku og þýddi bæði hagfræði- og skáldverk eftir höfunda eins og Karl *Marx, Charles *Dickens og Erich *Kästner, sem og Tvö japönsk no-leikrit eftir Semi Mutokiyo (þýð. 2001).
Rit
Fræðirit: Upphaf siðmenningar, 1974.
Viðtalsbók: Þá rauður loginn brann, 1991.
Þýðingar: Régis Debray, Félagi forseti (um Salvatore Allende), 1973; Charles Dickens, Nikulás Nickleby (stytt gerð; ásamt Hannesi Jónassyni), 1944; Maurice Dobb (o.fl.), Karl Marx og hagfræðikenningar hans. Fimm ritgerðir, 1962; Cyril Walter Hodges, Kristófer Kólumbus, 1954; Erich Kästner, Emil og leynilögreglustrákarnir, 1948; Karl Marx, Kommúnistaávarpið, 1990; Semi Mutokiyo, Tvö japönsk no-leikrit, 2001; Hesketh Pearson, Óskar Wilde. Ævisaga (ásamt Jóni Óskar), 1956; Edmund Wilson, Handritin frá Dauðahafi, 1957.
Heimild: Alfræði íslenskra bókmennta
Haraldur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1946 og lauk meistaraprófi í hagfræði frá University of London árið 1956. Þá tók hann BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Hann var hagfræðingur hjá efnahagsmálanefnd um tíma árið 1956, var formaður stjórnar Útflutningssjóðs 1957-60 og formaður stjórnar Hlutatryggingasjóðs 1959 til 1962. Þá var hann fyrirlesari við háskólana í Malaja árin 1964-68 og Jóhannesarborg í Suður-Afríku 1969-71. Haraldur var hagfræðingur hjá Framkvæmdastofnun ríkisins frá 1973 til 1977 og vann eftir það að sjálfstæðum verkefnum. Þá var Haraldur einn helsti efnahagsráðgjafi vinstristjórnar Hermanns Jónassonar árin 1956-58.
Eftir Harald liggja fjölmörg rit og bækur um efnahagsmál og sögu. Einnig tók hann saman handbækur handa nemendum um ensk orð og orðtök, enska málshætti og útlend orð í ensku.
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/658600/?item_num=25&dags=2002-03-22
Varðveislustaður
Um aðföng eða flutning á safn
Umfang og innihald
Grisjun, eyðing og áætlun
Viðbætur
Skipulag röðunar
Skilyrði er ráða aðgengi
Skilyrði er ráða endurgerð
Tungumál efnis
Leturgerð efnis
Athugasemdir um tungumál og letur
Umfang og tæknilegar þarfir
Leiðarvísir
Staðsetning frumrita
Staðsetning afrita
Tengdar einingar
Related descriptions
Alternative identifier(s)
Efnisorð
Staðir
Nöfn
- Haraldur Jóhannsson (Creator)