Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
F. á Kleifum í Gilsfirði 14. ágúst 1801, d. 17. jan. 1881. For.: Níels Sveinsson (f. um 1764, d. 22. júní 1810) bóndi þar og k. h. Sesselja Jónsdóttir (f. um 1771, d. 22. nóv. 1867) húsmóðir. Faðir Hallgríms Sveinssonar biskups og alþm., tengdafaðir Björns Jónssonar alþm. og ráðherra, afi Sveins Björnssonar forseta Íslands og alþm. K. 1. (21. ágúst 1827) Guðný Jónsdóttir (f. 20. apríl 1804, d. 11. jan. 1836) húsmóðir og skáldkona. Þau skildu. For.: Jón Jónsson og 2. k. h. Þorgerður Runólfsdóttir. Systir Björns Jónssonar þfm. K. 2. (4. okt. 1836) Guðrún Jónsdóttir (f. 27. mars 1807, d. 10. júní 1873) húsmóðir For.: Jón Pétursson og k. h. Elísabet Björnsdóttir. Systir Halldórs og Ólafs alþm. Jónssona og mágkona Þórarins Böðvarssonar alþm. Börn Sveins og Guðnýjar: Jón Aðalsteinn (1830), Sigríður (1831). Börn Sveins og Guðrúnar: Elísabet Guðný (1839), Hallgrímur (1841), Jón (1843), Sveinn (1846).
Stúdentspróf Bessastöðum 1824.
Kennari og skrifari hjá Birni Blöndal sýslumanni og alþm. í Hvammi í Vatnsdal næstu tvö ár og síðan hjá séra Jóni Jónssyni í Stærra-Árskógi, síðar á Grenjaðarstað. Varð djákn þar 1828 og bjó í Klömbrum. Fékk Blöndudalshóla 1835, Staðarbakka 1843 og Staðarstað 1850, lausn 1874 og fluttist þá til Reykjavíkur. Fékk Hallormsstað 1879, en lét þar af prestskap haustið 1880 og fluttist þá aftur til Reykjavíkur. Prófastur í Snæfellsnessýslu 1866–1874. Kenndi flest ár 1830–1870 heimaskólalærdóm.
Þfm. Húnvetninga 1851. Alþm. Snæfellinga 1864–1869.
Samdi Prestatal og prófasta á Íslandi (1869, 2. útgáfa 1949–1951).
Staðir
Klömbur, Aðaldalur, S-Þingeyjarsýsla
Blöndudalshólar, Húnavatnssýsla
Staðarbakki, Miðfjörður, Húnavatnssýsla
Staðastaður, Snæfells- og Hnappadalssýsla
Hallormsstaður, Múlasýsla
Réttindi
Starfssvið
Alþingismaður
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Stjórnsvæði
Lýsinganúmer
Kennimark stofnunar
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Skráningarstaða
Skráningardagsetning
Tungumál
Leturgerð(ir)
Heimildir
Páll Eggert Ólason. 1951. Íslenzkar æviskrár. 4. bindi. O-S. Bls. 371-2: http://baekur.is/bok/000306940/4/375/Islenzkar_aeviskrar_fra_Bindi_4_Bls_375
Æviágrip um Svein Níelsson er að finna í Alþingismannatali á heimasíðu Alþingis: http://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=569