Stafrænar endurgerðir

Tímarit.is
Dagblöð og tímarit frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi
Handrit.is
Samskrá íslenskra handrita með mynduðum eintökum
Bækur.is
Stafræn endurgerð íslenskra bóka
Íslandskort.is
Íslandskort og ágrip af kortasögu
Hljóðsafn
Stafræn afrit af tónlist og viðtöl

Gagnasöfn

Skemman
Safn námsritgerða og rannsóknarita
Rafhlaðan
Rafrænt varðveislusafn
Vefsafnið
Íslenskir vefir frá 1996 til dagsins í dag
Leitir.is
Samleit í gagnasöfnum og samskrá bókasafna
Finna tímarit
SFX-leit að tímaritum í áskrift safnsins
Hvar.is
Landsaðgangur að tímarita- og gagnasöfnum
Þýðingar úr íslensku
Leit að þýðingum úr íslensku í Leitir.is

Safn Lbs 0195 NF - Sveinn Björnsson. Einkaskjalasafn

Tilvísunarkóði

IS IcReLIH Lbs 0195 NF

Titill

Sveinn Björnsson. Einkaskjalasafn

Dagsetning(ar)

  • 1929 - 1940 (Accumulation)

Þrep lýsingar

Safn

Umfang og efnisform

24 öskjur, 1 kassi

Nafn skjalamyndara

Sveinn Björnsson (27. febrúar 1881 - 25. janúar 1952)

Lífshlaup og æviatriði

F. í Kaupmannahöfn 27. febr. 1881, d. 25. jan. 1952. For.: Björn Jónsson (f. 8. okt. 1846, d. 24. nóv. 1912) ritstjóri, alþm. og ráðherra og k. h. Elísabet Guðný Sveins¬-dóttir (f. 17. júlí 1839, d. 11. júní 1922) húsmóðir, dóttir Sveins Níelssonar alþm. Afi Önnu Ólafsdóttur Björnsson alþm. K. (2. sept. 1908) Georgia Björnsson, f. Hansen (f. 18. jan. 1884, d. 18. sept. 1957) húsmóðir. For.: Hans Henrik Emil Hansen og k. h. Anna Catherine Hansen. Börn: Björn (1909), Anna Catherine Aagot (1911), Henrik (1914), Sveinn (1916), Ólafur (1919), Elísabet (1922).
Stúdentspróf Lsk. 1900. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1907. Yfirréttarmálaflutningsmaður 1907. Hrl. 1920.
Rak málaflutningsskrifstofu í Reykjavík 1907–1920 og 1924–1926. Settur 29. sept. 1919 málaflutningsmaður við landsyfirréttinn til 31. des. Skip. 1920 sendiherra í Danmörku, lausn 1924. Skip. 1926 að nýju sendiherra í Danmörku, lausn 1941. Ráðunautur ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum 1940–1941. Kjörinn af Alþingi ríkisstjóri Íslands 17. júní 1941 til jafnlengdar 1942, endurkjörinn 9. maí 1942 og 17. apríl 1943. Kjörinn af Alþingi fyrsti forseti Íslands að Lögbergi á Þingvöllum 17. júní 1944. Þjóðkjörinn án atkvæðagreiðslu frá 1945 og aftur frá 1949. Sat á Bessastöðum.
Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1912–1920, forseti bæjarstjórnar 1918–1920. Einn af stofnendum Eimskipafélags Íslands 1914 og formaður þess 1914–1920 og 1924–1926. Stofnandi Brunabótafélags Íslands og forstjóri þess frá stofnun 1916–1920. Einn af stofnendum Sjóvátryggingarfélags Íslands haustið 1918, formaður þess 1918–1920 og 1924–1926. Einn af stofnendum Rauða kross Íslands 10. des. 1924 og fyrsti formaður hans til 1926. Einn af stofnendum Málflutningsmannafélags Íslands 1911 og formaður þess 1918–1920. Skip. 1910 í peningamálanefnd. Var á vegum ríkis¬stjórnar-innar í nefnd til vörukaupa í Bandaríkjunum í júlí–okt. 1914. Kosinn í velferðarnefnd 1914 og 1915 og 1925 í mþn. í bankamálum. Fulltrúi Íslands á ráðstefnu í Genúa 1922, á alþjóðaráðstefnu í Haag 1930 um lögskipan (codification) á þjóðarétti, á ráðstefnu í Genf 1930–1931 til athugunar á stofnun Evrópubandalags, á fjármála-ráðstefnu í London 1933, á ráðstefnu í London 1937 til að ákveða reglur um möskva-stærð og fiskstærð með tilliti til veiða. Formaður viðskiptasamninganefnda er gert hafa tolla- og verslunarsamninga við Norðurlöndin, Bretland, Þýskaland og Miðjarðarhafslöndin.
Alþm. Reykv. 1914–1915 (Sjálfstfl. eldri) og 1919–1920 (Ufl. (Heimastjfl.), Uflbl.).
Skrifaði Endurminningar, gefnar út 1957. Um hann samdi Gylfi Gröndal bókina: Sveinn Björnsson – ævisaga. [Heimild: Alþingi.]

Um aðföng eða flutning á safn

Aðfanganúmer: 2000.05.06. ; 2004.09.02. ; 2004.09.04
Anna Ólafsdóttir Björnsson sagnfræðingur afhenti ýmis einkagögn afa síns 6. maí 2000. Elísabet Dolinda Ólafsdóttir afhenti til viðbótar ýmis einkagögn af síns 2. september 2004. Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur afhenti hljómplötu með ræðum Sveins Björnssonar.

Umfang og innihald

Bréf til Sveins Björnssonar varðandi fjölskyldu hans, viðskipti og lögfræðistörf. Bréfritarar eru bæði innlendir sem erlendi. Einnig bókhaldsgögn og persónuleg einkaskjöl.

Grisjun, eyðing og áætlun

Viðbætur

Skipulag röðunar

Skilyrði er ráða aðgengi

Safnið er opið.

Skilyrði er ráða endurgerð

Skv. reglum Landsbókasafns um ljósritun og myndun.

Tungumál efnis

  • íslenska

Leturgerð efnis

Athugasemdir um tungumál og letur

Umfang og tæknilegar þarfir

Leiðarvísir

Staðsetning frumrita

Staðsetning afrita

Tengdar einingar

Alternative identifier(s)

Efnisorð

Staðir

Nöfn

Lýsinganúmer

Kennimark stofnunar

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Skráningarstaða

Dates of creation revision deletion

Tungumál

Leturgerð(ir)

Heimildir

Aðföng

Related subjects

Tengdir einstaklingar og stofnanir

Tengdir staðir