Aðstoðarprestur í Miklaholti í Miklaholtshreppi, Snæf. 1843-1844. Aðstoðarprestur í Árnesi á Ströndum 1843-1849 og prestur þar 1849-1881. Þjónaði samhliða á Stað í Steingrímsfirði, Strand. 1875. Prófastur í Strandaprófastsdæmi 1871-1881.
Missti prestskap fyrir barneignarbrot 12. febr. 1844 með konu sem hann átti síðar. Talinn lítt laginn til prestsverka og ekki gáfumaður en söngmaður góður, viðfelldinn í viðmóti, búhöldur mikil og fjáraflamaður.
Fyrri kona: Guðrún (20. apr. 1814, d. 8. ág. 1844) Guðmundsdóttir prests á Staðastað, Jónssonar.
Seinni kona: Guðrún (er hann hafði átt barn með áður, f. 1820, d. 29. maí 1900) Ólafsdóttir, þjónustustúlka að Búðum.
Published