Identity area
Type of entity
Authorized form of name
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
History
Sigurberg Bogason fæddist í Flatey á Breiðafirði 18. desember 1918.
Foreldrar Sigurbergs voru hjónin Bogi Guðmundsson kaupmaður í Flatey, f. 21. janúar 1877 á Miðhúsum, Gufudalshreppi, d. 1965, og Sigurborg Ólafsdóttir kaupmannsfrú, f. í Flatey 7. september 1881, d. 1952.
Eiginkona Sigurbergs var Kristín Guðjónsdóttir, f. 28. júlí 1918 á Búðareyri við Reyðarfjörð.
Sigurberg og Kristín hófu sinn 66 ára búskap í Flatey á Breiðafirði þar sem Sigurberg stundaði hefðbundinn sjálfþurftarbúskap þess tíma. Þau bjuggu lengst af í húsinu Alheimi sem varð seinna þeirra sumardvalarstaður. Þegar vinnu þraut í Flatey um 1957 fluttist fjölskyldan til Vestmannaeyja. Þar lærði Sigurberg húsasmíðar og var virkur þátttakandi í skákfélaginu. Eftir eldgosið 1973 fluttust þau hjónin til Reykjavíkur og bjuggu þar síðan.