Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
F. á Ærlæk í Öxarfirði 10. okt. 1812, d. 22. nóv. 1878. For.: Gunnar Gunnarsson (f. 1786, d. 7. ágúst 1819) síðast bóndi á Hallgilsstöðum á Langanesi og k. h. Elísabet Sigurðardóttir (f. 1788, d. 8. okt. 1825) húsmóðir. Föðurbróðir Sigurðar Gunnarssonar alþm. í Stykkishólmi og tengdafaðir Jóns Jónssonar alþm. á Stafafelli. K. (20. júlí 1841) Bergljót Guttormsdóttir (f. 12. ágúst 1809, d. 2. okt. 1877) húsmóðir, systir Margrétar 1. konu Einars Ásmundssonar alþm. For.: Guttormur Pálsson og k. h. Margrét Vigfúsdóttir, systir Guttorms Vigfússonar alþm. á Arnheiðarstöðum. Börn: Guttormur (1842), Margrét (1843), Elísabet (1846), Guðlaug (1848), Jón (1850), Gísli (1852), Gunnar (1853), Stefán Benedikt (1854).
Hóf fyrst nám í silfur- og látúnssmíðum, en nam síðan skólalærdóm hjá Jóni guðfræðingi Þórarinssyni á Valþjófsstað og séra Guttormi Pálssyni í Vallanesi. Stúdentspróf Bessastöðum 1839.
Stundaði veturna 1839–1841 kennslu í Reykjavík, en var sumarið 1840 fylgdarmaður J. O. Schythe, dansks náttúrufræðings. Settist síðan að í Vallanesi og stundaði kennslu. Fékk 1844 Desjarmýri, vígður 1845. Fékk Hallormsstað 1861, fluttist þangað 1862 og hélt til æviloka. Gegndi jafnframt Þingmúlaprestakalli frá 1869. Prófastur í Suður-Múlaprófastsdæmi 1863–1874. Kynntist lækningum hjá tengdaföður sínum, stundaði þær allmikið og fékk að lokum leyfi stjórnvalda til þess að stunda lækningar.
Þfm. Norður-Múlasýslu 1851, alþm. Norður-Múlasýslu 1869–1874. Sat ekki þing 1873.
Ritstjóri: Iðunn (1860).
Staðir
Hallormsstaður, Skógar, Múlasýsla
Þingmúli, Skriðdalur
Réttindi
Starfssvið
Fékkst við lækningar
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Stjórnsvæði
Lýsinganúmer
Kennimark stofnunar
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Skráningarstaða
Skráningardagsetning
Tungumál
Leturgerð(ir)
Heimildir
Æviágrip um Sigurð Gunnarsson er að finna í Alþingismannatali á heimasíðu Alþingis: http://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=509
Páll Eggert Ólason. 1951. Íslenzkar æviskrár. 4. bindi. O-S. Bls. 223-4: http://baekur.is/bok/000306940/4/227/Islenzkar_aeviskrar_fra_Bindi_4_Bls_227