Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Pálmi Eyjólfsson
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
F. 22.07.1920 - d. 13.10.2005
History
Hann stundaði nám við Héraðsskólann að Laugarvatni. Ungur starfaði Pálmi við stíflugerð við Markarfljót, sjómennsku o.fl. Hann flutti á Hvolsvöll árið 1941 og hann og kona hans, Margrét Jóna Ísleifsdóttir, voru ein af frumbyggjum Hvolsvallar. Pálmi var verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Hallgeirseyjar, síðar Kaupfélagi Rangæinga, en lengst af fulltrúi hjá sýslumanni Rangæinga eða í 44 ár. Pálmi var virkur þátttakandi í félagsstafi í Rangárþingi. Hann var m.a. formaður sóknarnefndar Stórólfshvolskirkju, formaður stjórnar Héraðsbókasafns Rangæinga, formaður stjórnar Kaupfélags Rangæinga, sat í sýslunefnd Rangæinga og var í stjórn Byggðasafnsins í Skógum. Hann var mjög áhugasamur um framgang ýmissa hagsmunamála í Rangárþingi. Pálmi var einn af stofnendum Rotaryklúbbs Rangæinga, hann var meðlimur klúbbsins til dauðadags og sæmdur æðstu viðurkenningu Rotarymanna, Paul Harris-heiðursmerkinu. Hann var auk þess sæmdur riddarakrossi hinnar Íslensku fálkaorðu. Pálmi var vel hagmæltur og gaf út bókina Í ljósaskiptunum árið 2000. Fjöldi greina og ljóða eftir hann hafa birst í blöðum og tímaritum.
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1043740/
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1043740/
Places
Legal status
Functions, occupations and activities
Fv. sýslufulltrúi á Hvolsvelli
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
General context
Relationships area
Control area
Description identifier
IS
Institution identifier
IcReLIH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Partial
Dates of creation, revision and deletion
Frumskráð 26.06.2013
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Maintenance notes
JKÁ skráði