Skírður 17. okt. 1808, d. 18. ágúst 1873. For.: Sigurður Jónsson (f. 1776, d. 28. júlí 1862) bóndi í Varmahlíð undir Eyjafjöllum og 1. k. h. Valgerður Tómasdóttir (f. um 1785, d. 26. ágúst 1826) húsmóðir. Faðir Páls Pálssonar alþm. í Dæli. K. (13. nóv. 1840) Þuríður Þórðardóttir (f. 1. ágúst 1815, d. 11. júní 1900) húsmóðir. For.: Þórður Jónsson og k. h. Ólöf Beinteinsdóttir. Systir Jóns Þórðarsonar alþm. Börn: Anna Valgerður (1841), Sigurður (1843), Sigurður (1844), Sigurður (1845), Þórður (1847), Páll (1848), Þórður (1850), Páll (1853), Ólöf (1854), Sigurþór (1857). Sonur Páls og Önnu Jónsdóttur: Páll (1832).
Bóndi í Árkvörn í Fljótshlíð frá 1839 til æviloka.
Þfm. Rangæinga 1851. Alþm. Rangæinga 1852–1864. Varð að láta af þingmennsku vegna sjónleysis.