Var í Skarðskoti, Leirársókn, Borg. 1779. Var á sama stað, 1783. Var á sama stað, 1786. Var í Skorholti, sömu sókn, 1792. Finnst ekki í Manntalinu 1801. Taldi sig fæddan 4.9.1777.
Nam bókband í Leirárgörðum í 1 ár (1797-8), en í Kaupmannahöfn líklega 1798-1802. Var síðan með Magnús dómstjóra Stephensen, en bjó í Þerney 1813-19 og síðan mjög víða. Síðast í Gerðum í Garði og andaðist þar. Vel gefinn og hagmæltur.
Fyrri kona: Katrín, laundóttir Magnúsar prentara Móbergs, ekkja Ingjalds Þorkelssonar í Þerney. Seinni kona: Anna Magnúsdóttir í Saltvík á Kjalarnesi, Kolbeinssonar.