Lærði fyrst hjá síra Einari Thorlacius í Saurbæ í Eyjafirði, tekinn í Bessastaðaskóla 1824, en missti skólavist vegna barneignar eftir 2 vetur. Var síðan að námi hjá síra Helga Thordersen, síðar biskupi, og varð stúdent frá honum úr heimaskóla 1828. Húsbóndi og stúdíósus í Skarði, Skarðssókn, Rang. 1835. Aðstoðarprestur á Klausturhólum í Grímsnesi, Árn. 1836-1845 og prestur þar 1845-1855. Prestur í Vogsósum í Selvogsþingum, Árn. 1855-1860 og loks að Mosfelli í Mosfellssveit frá 1860 til dauðadags.
Kennimaður góður og vel að sér um margt, dugnaðarmaður og búöldur.
Fyrrri kona: Vilborg (f. 22. mars 1796, d. 6. mars 1853) Ingvarsdóttir í Skarði á Landi, Magnússonar.
Seinni kona: Þóra (f. 3. júlí 1813, d. 1870) Auðunardóttir prests á Stóru Völlum Jónssonar.
Launsonur Þórðar (í skóla) með Guðnýju Magnúsdóttur, vinnukonu á Bessastöðum er Síra Jón að Auðkúlu.
Published