Stafrænar endurgerðir

Tímarit.is
Dagblöð og tímarit frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi
Handrit.is
Samskrá íslenskra handrita með mynduðum eintökum
Bækur.is
Stafræn endurgerð íslenskra bóka
Íslandskort.is
Íslandskort og ágrip af kortasögu
Hljóðsafn
Stafræn afrit af tónlist og viðtöl

Gagnasöfn

Skemman
Safn námsritgerða og rannsóknarita
Rafhlaðan
Rafrænt varðveislusafn
Vefsafnið
Íslenskir vefir frá 1996 til dagsins í dag
Leitir.is
Samleit í gagnasöfnum og samskrá bókasafna
Finna tímarit
SFX-leit að tímaritum í áskrift safnsins
Hvar.is
Landsaðgangur að tímarita- og gagnasöfnum
Þýðingar úr íslensku
Leit að þýðingum úr íslensku í Leitir.is

Safn KSS 0067 - Nanna Kaaber. Einkaskjalasafn.

Tilvísunarkóði

IcReLIH KSS 0067

Titill

Nanna Kaaber. Einkaskjalasafn.

Dagsetning(ar)

  • 1941 - 1966 (Creation)

Þrep lýsingar

Safn

Umfang og efnisform

Fimm venjulegar skjalaöskjur sem geyma bréf og stílabækur.

Nafn skjalamyndara

Nanna Kaaber (f. 1918) (1918-2011)

Lífshlaup og æviatriði

Nanna Ida Kaaber fæddist í Reykjavík 21. maí 1918, lést í Reykjavík 5. maí 2011.
Foreldrar Nönnu voru Ludvig Emil Kaaber frá Danmörku, f. 1878, d. 1941 og kona hans Astrid Bertine, f. Thomsen 1884, d. 1928.

Nanna giftist 22.9. 1945 Bjarna Árnasyni, f. 1918, d. 2004, þau skildu. Foreldrar hans voru Árni S. Bjarnason, f. 1879, d. 1969 og kona hans Björg Stefánsdóttir, f. 1880, d. 1968. Börn Nönnu og Bjarna eru: 1) Árni Emil, f. 1948 og 2) Ástríður Björg, f. 1955.

Kornung dvaldi Nanna með foreldrum sínum á Borgundarhólmi um skeið. Hún ólst svo upp á Hverfisgötu 28 og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Reykjavíkur. Nanna starfaði við skrifstofustörf um tíma, en lærði svo garðyrkju í Fagrahvammi í Hveragerði. Hún nam garðyrkju- og blómaskreytingar í Árósum og kom heim með síðustu ferð Gullfoss fyrir stríð 1939. Nanna stofnaði blómabúðina Garð við Garðastræti ásamt með Stefáni Árnasyni. Árið 1959 hóf hún að vinna hjá danska sendiráðinu og starfaði þar í 30 ár, fram til ársins 1988 þegar hún stóð á sjötugu. Nanna var einn af stofnendum ferðafélagsins Útivistar, sat í kjarna þess frá upphafi og var heiðursfélagi. Hún var fararstjóri í áratugi og fór í sína síðustu ferð sem slíkur árið 2005, þá 87 ára.

Varðveislustaður

Um aðföng eða flutning á safn

Tengdadóttir Nönnu, Hulda Júlíusdóttir, færði gögnin í Kvennasögusafn Íslands 29. febrúar 2016.

Umfang og innihald

5 skjalaöskjur, venjulegar að stærð. Safnið geymir bréf til Nönnu á árabiliu 1941-1966, póstkort, stílabækur með heimilisbókhaldi frá árunum 1947-1962, 2 garðyrkjudagbækur

Grisjun, eyðing og áætlun

Engu var eytt og engar áætlanir um slíkt

Viðbætur

Viðbóta er ekki von

Skipulag röðunar

A: Bréfaskipti
G: Persónulegt efni

Skilyrði er ráða aðgengi

Notendur er bundnir ákvæðum höfundarlaga nr. 72/1973

Skilyrði er ráða endurgerð

Tungumál efnis

  • danska
  • íslenska

Leturgerð efnis

Athugasemdir um tungumál og letur

Umfang og tæknilegar þarfir

Leiðarvísir

Staðsetning frumrita

Staðsetning afrita

Tengdar einingar

Alternative identifier(s)

Efnisorð

Staðir

Nöfn

Lýsinganúmer

IS

Kennimark stofnunar

IcReLIH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Final

Skráningarstaða

Full

Dates of creation revision deletion

30. mars 2016

Tungumál

Leturgerð(ir)

Heimildir

Mbl. 17. maí 2011

Athugasemd skjalavarðar

Var áður á safnmarki KSS 232. Rakel Adolphsdóttir færði á safnmarkið KSS 67 í febrúar 2017.

Aðföng

Related subjects

Tengdir einstaklingar og stofnanir

Tengdir staðir