Judith Pamela Þorbergsson fæddist í London 1965. Eftir að hún lauk prófi frá Guildhall School of Music and Drama fluttist hún til Íslands og hefur starfað hér síðan bæði sem píanó- og fagottleikari. Judith starfar við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og hefur m.a. komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Bach-sveitinni í Skálholti og hljómsveit íslensku óperunnar. Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/316957/