Reference code
Title
Date(s)
Level of description
Extent and medium
Name of creator
Biographical history
Fæddur á Skeggjastöðum á Langanesströnd 28. maí 1802, dáinn 30. júní 1875. Foreldrar: Skafti Skaftason (fæddur 20. apríl 1760, dáinn 26. nóvember 1804) prestur þar og kona hans Guðrún Einarsdóttir (fædd 5. maí 1772, dáin 2. ágúst 1846) húsmóðir. Maki (16. júlí 1837): Anna Margrét Björnsdóttir Ólsen (fædd 22. apríl 1814, dáin 14. desember 1885) húsmóðir. Foreldrar: Björn Ólsen og kona hans Ingunn Jónsdóttir. Systir Runólfs Magnúsar Ólsens alþingismanns. Börn: Björn Skafti (1839), Björn Stefán (1840), Runólfur Magnús (1841), Benedikt Jón (1842), Guðrún Anna (1842), Runólfur Magnús (1843), Guðrún Ingunn (1844), Jósefína Anna (1846), Brynjólfur Timotheus (1848), Magnús Ólafur (1850), Guðrún Anna (1852).
Stúdentspróf Bessastöðum 1827. Sigldi til Kaupmannahafnar 1831, hóf nám í Hinu konunglega kírúrgíska akademíi og lauk prófi í handlækningum 1837.
Sýsluskrifari og heimiliskennari 1827–1831 hjá Birni Blöndal alþingismanni í Hvammi í Vatnsdal. Stundaði lækningar í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum með styrk af opinberu fé 1837–1856. Skipaður 1856 læknir í þessum sýslum, er þær voru gerðar að sérstöku læknishéraði, og gegndi því embætti til æviloka.
Formaður búnaðarfélags og verslunarfélags Húnvetninga árum saman.
Þjóðfundarmaður Húnvetninga 1851. Kosinn alþingismaður Húnvetninga 1852, en amtmaður bannaði honum að fara til þings nema hann fengi lærðan lækni til að gegna störfum í sinn stað. Hann kom aldrei á Alþing og sagði af sér þingmennsku fyrir þing 1857, en þá var hann orðinn héraðslæknir.
Repository
Immediate source of acquisition or transfer
Scope and content
Appraisal, destruction and scheduling
Accruals
System of arrangement
Conditions governing access
Conditions governing reproduction
Language of material
Script of material
Language and script notes
Physical characteristics and technical requirements
Finding aids
Existence and location of originals
Existence and location of copies
Related units of description
Related descriptions
Alternative identifier(s)
Subject access points
Place access points
Name access points
- Jóseph Skaptason (Creator)