Tilvísunarkóði
Titill
Dagsetning(ar)
Þrep lýsingar
Umfang og efnisform
Nafn skjalamyndara
Lífshlaup og æviatriði
F. á Þórðarstöðum í Fnjóskadal 17. maí 1812, d. 14. apríl 1887. For.: Kristján Jónsson (f. um 1771, d. 1. jan. 1844) bóndi á Illugastöðum í Fnjóskadal og k. h. Guðrún Halldórsdóttir (f. um 1776, d. 24. ágúst 1846) húsmóðir. Bróðir Benedikts alþm. og Kristjáns alþm. Kristjánssona og Kristbjargar konu Jóns Jónssonar þfm. á Lundarbrekku. K. (16. júlí 1839) Guðný Sigurðardóttir (f. 9. nóv. 1820, d. 19. apríl 1892) húsmóðir. For.: Sigurður Jónsson og k. h. Kristín Þorsteinsdóttir. Systir Arnfríðar konu Benedikts Kristjánssonar alþm. Börn: Guðrún (1841), Valgerður (1842), Kristín María Jónína (1845), Kristján (1848), Björn (1850), Ingibjörg (1852), Sigurður (1860). Sonur Jóns og Önnu Jónsdóttur: Kristján (1861).
Stúdentspróf Bessastöðum 1833.
Vígðist 1836 aðstoðarprestur Eiríks Þorleifssonar á Stað í Kinn og fékk prestakallið eftir hann 1843, bjó í Ystafelli. Fékk Þingeyraklaustursprestakall 1862 og bjó í Steinnesi. Fékk Breiðabólstað í Vesturhópi 1868, lausn 17. mars 1883. Fluttist þá að Þverá í Vesturhópi.
Alþm. S.-Þing. 1852–1858, alþm. Húnv. 1871 (vþm.).
„Skapríkur, drenglundaður, viðkvæmur“ segir Indriði.
Varðveislustaður
Um aðföng eða flutning á safn
Umfang og innihald
Grisjun, eyðing og áætlun
Viðbætur
Skipulag röðunar
Skilyrði er ráða aðgengi
Skilyrði er ráða endurgerð
Tungumál efnis
Leturgerð efnis
Athugasemdir um tungumál og letur
Umfang og tæknilegar þarfir
Leiðarvísir
Staðsetning frumrita
Staðsetning afrita
Tengdar einingar
Related descriptions
Alternative identifier(s)
Efnisorð
Staðir
Nöfn
- Jón Kristjánsson (Creator)