Auðkenni
Tegund einingar
Person
Leyfileg nafnaform
Jón Helgason
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
F. 30.06.1899 - d. 19.01.1986
Saga
Jón Helgason, f. 30. júní 1899 að Rauðsgili í Hálsasveit, Borgarf. [d. 19. janúar 1986 í Kaupmannahöfn]. For.: Helgi Sigurðsson b. þar og Valgerður Jónsdóttir. Stúd. M.R. 1916. Mag. Art. Í norrænum fræðum við Khafnarhásk. 1923. Dr. Phil. við Hásk. Ísl. 1926. Kennari við hásk. í Osló 1926–27. Forstöðumaður safns Árna Magnússonar í Khöfn 1927–57, síðan forstöðumaður Árna Magnússonar stofnunarinnar og hefur átt sæti í Árnanefnd frá 1936. Prófessor í íslenskri tungu og bókmenntum við Khafnarhásk. frá 1929. Félagi í Vísindafélagi Íslendinga 1930, Vetenskaps-Societen í Lundi 1938, Det norske Videnskapsakademi 1946, Det kgl. danskeVidenskabernes Selskab 1954, Kungl. Vitterhets, Historie och antikvitets Akademien 1956, Vetenskaps-Societeten í Uppsölum 1957 og Gustav Adolfs Akademien í Uppsölum 1960. Heiðursfélagi Hins ísl. bókmenntafélags 1951. Helztu útgáfur og rit: Heiðreks saga, 1924. Jón Ólafsson frá Grunnavík (doktorsrit), 1926. Hrappseyjarprentsmiðja, 1928. Málið á Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar, 1929. Udvalgte afsnit af Konungsskuggsjá, 1930. Den store saga om Olav den hellige (ásamt próf. O.A. Johnsen), 1930–41. Íslendsk lesibók (ásamt Janus Øssurson), 1932. Norrøn Litteraturhistorie, 1934. Bjarni Thorarensen: Ljóðmæli I–II, 1935. Inngangur að Corpus codicum Islandicorum medii aevi VI (1934), XV (1942) og XIX (1950), ennfremur að Monumenta typographica Islandica IV (1936) og VI (1942). Íslenzk miðaldakvæði 1936 o.áfr. Byskupa sögur 1938 o.áfr. Úr landsuðri (kvæði), 1939, 2. pr. Með úrfellingum og viðaukum 1948. 3. pr. 1965, 4. pr. 1971. Lucas Debes, 1940. Háttalykill enn forni (ásamt Anne Holtsmark), 1941. Úr bréfabókum Brynjólfs biskups Sveinssonar, 1942. Bjarni Thorarensen: Bréf I, 1943. Ármanns rímur og Ármanns þáttur, 1948. Ludvig Holberg: Nikulás Klím. Íslenzk þýðing eftir Jón Ólafsson úr Grunnavík, 1948. Islandske læsestykker, 1948. Ludvig Holberg: Jóhannes von Háksen, 1950. Móðars rímur og Móðars þáttur, 1950. Hrafnkels saga, 1950. Fortællinger fra Landnámabók,1951. Eddadigte I–III, 1951–52. Hákonar saga Ívarssonar (ásamt Jakobi Benediktssyni), 1952. Norges og Islands digtning, í Nordisk Kultur VIII, 1952. Kvæðabók úr Vigur, 1955. Víga-Glúms saga og Gísla saga Súrssonar, 1956. Handritaspjall, 1958. Ritgerðarkorn og ræðustúfar, 1959. Kvæðabók Gissurar Sveinssonar, 1960. Tuttugu erlend kvæði og einu betur, 1962. Tvær kviður fornar, 1962. Kviður af Gotum og Húnum, 1967. Kver með útlendum kvæðum, 1976. Tólf annálagreinar frá myrkum árum (sérpr. úr sjötíu ritgerðum helguðum Jakobi Benediktssyni), 1977. Margar ritgerðir í tímaritum, afmælisritum og safnritum. Ritstjóri Bibliotheca of Early Icelandic Manuscripts in Facsimile. Meðritstj. Acta philologica Scandinavica. 1. k. 29. júní 1923 Þórunn Ástríður, f. 25. marz 1895, d. 9. maí 1966, Björnsdóttir hreppstj. og alþm. að Grafarholti í Mosfellssveit Bjarnasonar og k.h. Kristrúnar Eyjólfsdóttur. 2. k. 22. des. 1975 Agnete Loth mag. art., lektor í forníslenzku við Khafnarhásk., f. 18. nóv. 1921, dóttir Tage Loth fulltrúa á skattstofu í Khöfn og k.h. Ingeborg Gerda Loth, f. Gammeltoft Rasmussen. Heimild: Torfi Jónsson: Æviskrár samtíðarmanna II. bindi. Hafnarfirði: Skuggsjá, 1983. Bls. 146–147
Staðir
Réttindi
Starfssvið
Íslensku textafræðingur og ljóðskáld, forstöðumaður Árnasafns og síðar Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn frá 1927–72 og prófessor í norrænum fræðum við Hafnarháskóla 1929–69.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Þórunn Ástríður Björnsdóttir
Identifier of the related entity
Flokkur tengsla
family
Dagsetningar tengsla
Lýsing á tengslum
Jón og Þórunn voru gift.
Tengd eining
Rebekka Þiðriksdóttir
Identifier of the related entity
Flokkur tengsla
family
Dagsetningar tengsla
Lýsing á tengslum
Jón var uppeldisbróðir og náfrændi Rebekku
Stjórnsvæði
Lýsinganúmer
IS
Kennimark stofnunar
IcReLIH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Skráningarstaða
Partial
Skráningardagsetning
Frumskráð 31.10.2013
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
Torfi Jónsson: Æviskrár samtíðarmanna II. bindi. Hafnarfirði: Skuggsjá, 1983. Bls. 146–147 http://www.visindavefur.is/svar.php?id=59991
Athugasemdir um breytingar
JKÁ skráði