Hjörleifur ólst upp í Bolungarvík til 16 ára aldurs. Þá fluttist hann að Hrafnagili í Eyjafirði og bjó í Eyjafirði og á Akureyri allt til dauðadags. Hann vann á Hrafnagili við almenn sveitastörf en fluttist síðan til Akureyrar og vann um tíma í byggingarvinnu. Fljótlega hóf hann störf í verksmiðjum Sambandsins á Gleráreyrum og vann allan sinn starfsaldur þar, í tæplega hálfa öld, fyrst við almenn störf í ullariðnaði og síðar sem verkstjóri. Samhliða þessu hafði hann búskap og reri á trillu til fiskjar og vann um tíma aukastörf í verksmiðjunni í Krossanesi. Árin 1985 og 1986 lenti hann í erfiðum veikindum og ákvað að snúa ekki aftur til starfa. Hann náði heilsunni á ný og lifði góðu lífi fram á þetta ár. Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1259771/