Gagnfræðapróf Akureyri 1922. Kennarapróf Johnstrup Statsseminarium í Danmörku 1927. Hélt smábarnaskóla á Ísafirði 1927—1928. Kennari við barnaskólann á Akranesi 1928—1929. Skólastjóri barnaskólans í Súðavík 1929—1931. Skrifstofumaður hjá Samvinnufélagi Ísfirðinga 1931—1938, hafði jafnframt umsjón með byggingu Alþýðuhúss Ísafjarðar og var forstöðumaður þess 1934—1938. Stundakennari við Gagnfræðaskólann á Ísafirði 1931—1938, skólastjóri 1938—1954 og 1975. Ritstjóri í Reykjavík 1952—1954. Skip. 24. júlí 1956 félags- og heilbrigðismálaráðherra, lausn 4. des. 1958, en gegndi störfum til 23. des. 1958. Skip. 14. júlí 1971 samgöngu- og félagsmálaráðherra, lausn 16. júlí 1973. Rak búskap í Selárdal í Arnarfirði 1966—1977. Formaður Verkalýðsfélagsins Baldurs á Ísafirði 1932—1939. Bæjarfulltrúi á Ísafirði 1933—1949. Forseti Alþýðusambands Vestfjarða 1934—1953. Forseti Alþýðusambands Íslands 1954—1971. Í kaupskrárnefnd 1954—1971. Í Norðurlandaráði 1954 og 1973—1974. Skip. 1966 í nefnd til að semja frumvarp um almennan lífeyrissjóð. Skip. 1968 í atvinnumálanefnd ríkisins. Kosinn 1972 í stjórnarskrárnefnd og skip. formaður hennar. Kosinn 1973 í neyðarráðstafananefnd vegna eldgossins á Heimaey. Formaður Alþýðuflokksins 1952—1954, Alþýðubandalagsins (kosningabandalags Sósíalistaflokksins og Málfundafélags jafnaðarmanna) 1956—1968 og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna frá stofnun þeirra 1969—1974.
Landsk. alþm. (N.-Ísf.) 1946—1952, (Ísaf.) 1953—1956 og (Reykv., Vestf.) 1959—1963, alþm. Ísaf. 1952—1953, alþm. Reykv. 1956—1959 og 1967—1971, alþm. Vestf. 1963—1967 og 1971—1974 (Alþfl., Alþb., Ufl., Frjálsv.). Félags- og heilbrigðismálaráðherra 1956—1958, samgöngu- og félagsmálaráðherra 1971—1973. Formaður þingflokks Samtaka frjálslyndra og vinstri manna 1969—1974.
Samdi rit og fjölda greina birtra í tímaritum og blöðum um stjórnmál, verkalýðsmál og skólamál. Hannibal Valdimarsson og samtíð hans heitir bók eftir Þór Indriðason (1990). Ritstjóri: Skutull (1935—1938 og 1943—1947). Alþýðublaðið (1952—1954). Heimild: http://www.althingi.is/altext/cv/?ckennitala=1301030009