Handritasafn var formlega stofnað innan Landsbókasafns Íslands árið 1846.
Landfræðilegt og menningarlegt samhengi
Handritasafnið tekur á móti gögnum frá öllu landinu.
Lagaheimild
Landsbókasafn starfar skv. lögum nr. 142 28. september 2011. Reglugerð um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn nr. 706/1998; Reglugerð um breytingu á reglugerð um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn nr. 664/2003; Reglugerð nr. 1078/2010 um breytingar á reglugerð um Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn nr. 706/1998 með áorðnum breytingum. Lög um skylduskil til safna nr. 20/2002 Reglugerð um skylduskil til safna nr. 982/2003
Stjórnunargerð
Þær einingar er varðveita handrit, skjöl og aðrar frumheimildir innan safnsins eru handritasafn, miðstöð munnlegrar sögu og kvennasögusafn. Þessar einingar heyra til sviðs varðveislu og stafrænnar endurgerðar. Önnur svið í safninu eru rekstrar-, upplýsinga og þjónustusvið.
Skjalastjórn og aðfangastefna
Handritasafn tekur á móti handritum og einkaskjalasöfnum frá einstaklingum og félagasamtökum sem ekki heyra undir skilaskyldu til Þjóðskjalasafns Íslands eða héraðsskjalasafnanna.
Byggingar
Handritasafnið er til húsa í Þjóðarbókhlöðu, Arngrímsgötu 3 í Reykjavík og er þar á fyrstu hæð.
Safnkostur
Leiðarvísar og útgáfur
Skrár yfir handritasafnið og ýmis einkaskjalasöfn eru á www.landsbokasafn.is/handrit einnig www.handrit.is Útgefnar skrár yfir safnið komu út á árunum 1918-1937 og svo viðaukabindi 1947, 1959, 1970 og 1996. Þær skrár hafa verið skannaðar og má finna á ofangreindum síðum, einnig á www.baekur.is.
Aðgengi
Opnunartími
Handritasafn er opið frá september til maíloka: mánudaga - föstudaga frá 8:00 til 17:00. Handritasafn er opið frá júní til ágústloka: mánudaga - föstudaga frá 9:00-17:00. Yfir veturinn er lestarsalurinn opinn til kl. 19.
Skilyrði og kröfur fyrir aðgengi
Notendur skulu hafa gilt notendaskírteini.
Aðgengi
Handritasafnið er öllum aðgengilegt, hægt er að taka lyftu til að komast á 1. hæð.
Þjónustusvæði
Rannsóknarþjónusta
Á lestarsal handritasafn eru helstu handbækur og ritraðir á sviði íslenskra fræða, einnig þráðlaust netsamband og nokkrar notendatölvur.
Þjónusta við endurgerð
Hægt er að panta ljósrit eða skönnun ef ástand gagna heimilar það.
Handritasafn er opið frá september til maíloka: mánudaga - föstudaga frá 8:00 til 17:00. Handritasafn er opið frá júní til ágústloka: mánudaga - föstudaga frá 9:00-17:00. Yfir veturinn er lestarsalurinn opinn til kl. 19.