Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
Vélvirkjanám hjá Vélsm. Magna í Vestm. 1943-47. Iðnsk. Vestm. sama ár. Sveinspróf 1947 í Vestm. Námskeið í sjóv. í Vestm. 1940, í félags og fundastörfum í Keflavík 1966, í framsögn við leiksk. Ævars Kvaran 1967. Vélskóli Íslands 1947-49. Vélstjpr. 1949. Rafmagnsdeild 1950. Stundaði sjó, sveita og aðra landvinnu fyrir iðnnám. Vann við vélaviðg. og járnsm. hjá S. R. á Raufarhöfn sumrin 1946 og 1947. Kyndari og vélstjóri á togurum sumrin 1948-49. Vél og vinnslustj. hjá S. R. á Sigluf. sumarið 1950 og hjá S. R. Raufarh. sumrin 1951-52. Vann að nýsmíði tækja í síldar og fiskimjölsverksmiðju hjá Vélsm. Héðni, Reykjavík, veturinn 1950-51. 2. vélstjóri á b/v Surprise veturinn 1951-52. Við uppsetn. véla og tækja í Írafossvirkjun 1952-53. Hóf störf á Keflavíkurflugvelli 1953. Hefur starfað þar óslitið síðan, lengst af við verkstjórn og vélaeftirlit. Undirverkt. við eftirlit og viðhald kælitækja, frystitækja og véla síðan 1960. Prófdómari við Iðnsk. Keflavíkur 1956-70, við vélstjr.námsk. Fiskifél. Ísl. í Sandgerði 1957. Við fasteigna og skipasölu 1958-62. Formaður skólafél. Iðnsk. Vestm. 1944-46. Í stjórn skólafél. Vélskóla Íslands 1948. Fulltrúi Vélstjr.fél. Ísl. á þingum Farmanna og fiskimannasamb. Ísl. 1951-53. Í stjórn Iðnaðarmfél. Suðurn. 1958-1973, þar af Formaður 1966-73, fulltrúi þess á Iðnþingum frá 1959, þingforseti 30. Iðnþings Íslendinga 1968. Í milliþingan. 1962-63 til undirbúnings að stofnun Alm. lífeyrissj. iðnaðarm., í stjórn þess sjóðs frá stofnun, Formaður hans frá 1968. Meðstofnandi Lionskl. Njarðvíkur 1957, forseti hans 1968. Formaður fegrunarn. Njarðvíkurhr. 1966-74. Varam. í hreppsnefnd Njarðvíkurhr. 1970-78. Formaður stjórnar verkambústaða í Njarðvík 1972-74. í náttúruverndarn. Gullbringus. frá 1971. Formaður Fél. Vestm. frá stofnun 1973-78. Formaður stjórnar Lífeyrissj. I. S. frá stofnun 1972. í sambstj. Landssamb. iðnaðarm. 1973-75. Formaður Krabbameinsfél. Keflavíkur og nágr. 1979 og síðan. Lögheimili í Vestm. til 1947, í Reykjavík 1947-55, í Ytri-Njarðvík síðan 1955. Eyþór hefur skrifað blaðagreinar um ýmis efni.
Heimild: http://idn-sudurnes.net/Frameset.html
Einnig fór hann á blaðamennskunámskeið, námskeið í framsögutækni, námskeið í vörslu skjala en hann vann á Þjóðskjalasafni Íslands frá 1988 - 1995. Eyþór var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1. desember 1995 fyrir fræða- og félagsstörf. Fulltrúi á iðnþingum 1958 -1980, formaður rit- og útgáfunefndar Iðnaðarmannatals Suðurnesja 1970-1983, heiðursfélagi Iðnaðarmannafélags Suðurnesja frá 1984, varamaður í hreppsnefnd 1970-1978, formaður stjórnar verkamannabústaða í Njarðvík 19721974, í náttúruverndarnefnd Gullbringusýslu 19711978, meðstofnandi og formaður félags Vestmannaeyinga á Suðurnesjum frá stofnun 1973-1978, heiðursfélagi þess 1983, formaður Krabbameinsfélags Suðurnesja 19791984, í stjórn Krabbameinsfélags Íslands 1981-1983, endurskoðandi félagsins 19831989, heiðursfélagi 1995, í stórn Húseigendafélagsins 1982- 1988, í stjórn Félags sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi frá 1988.
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/426989/
Staðir
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Stjórnsvæði
Lýsinganúmer
Kennimark stofnunar
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Skráningarstaða
Skráningardagsetning
Tungumál
- íslenska