Stafrænar endurgerðir

Tímarit.is
Dagblöð og tímarit frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi
Handrit.is
Samskrá íslenskra handrita með mynduðum eintökum
Bækur.is
Stafræn endurgerð íslenskra bóka
Íslandskort.is
Íslandskort og ágrip af kortasögu
Hljóðsafn
Stafræn afrit af tónlist og viðtöl

Gagnasöfn

Skemman
Safn námsritgerða og rannsóknarita
Rafhlaðan
Rafrænt varðveislusafn
Vefsafnið
Íslenskir vefir frá 1996 til dagsins í dag
Leitir.is
Samleit í gagnasöfnum og samskrá bókasafna
Finna tímarit
SFX-leit að tímaritum í áskrift safnsins
Hvar.is
Landsaðgangur að tímarita- og gagnasöfnum
Þýðingar úr íslensku
Leit að þýðingum úr íslensku í Leitir.is

File - Brynjólfur Jónsson (f.1838)

Bréf - 02.11.1861 Bréf - 13.11.1862 Bréf - 10.02.1862 Bréf - 18.10.1862 Bréf - 20.04.1863 Bréf - 01.02.1863 Bréf - 03.02.1865 Bréf - 17.09.1866 Bréf - 03.02.1866 Bréf - 03.02.1864 Bréf - 25.09.1864 Bréf - 24.09.1865 Bréf - 30.01.1869 Bréf - 06.05.1865 Bréf - 26.02.1864 Bréf - 02.03.1866 Bréf - Ódagssett (Eftir... Kreddur Af steini sem fannst 1860 Hrómundarbréf
Results 1 to 20 of 27 Show all

Reference code

Title

Brynjólfur Jónsson (f.1838)

Date(s)

Level of description

File

Extent and medium

Name of creator

Brynjólfur Jónsson (26. september 1838 - 16. maí 1914)

Biographical history

Brynjúlfur Jónsson (Brynjúlfur frá Minna-Núpi) (26. september 1838 – 16. maí 1914) var sjálfmenntaður íslenskur alþýðumaður sem lagði stund á fornleifafræði, heimspeki, kveðskap, þjóðsagnasöfnun og ritstörf. Hans mestu afrek voru á sviði fornleifafræðinnar en hann ferðaðist um landið, rannsakaði fornminjar og skrifaði skýrslur í Árbók hins íslenska fornleifafélags. Hann er einnig þekktur fyrir að hafa skrifað söguna af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum sem stundum er talin vera yngsta Íslendingasagan .

Brynjúlfur var frá Minna-Núpi í Gnúpverjahreppi, Árnessýslu, sonur hjónanna Jóns Brynjúlfssonar og Margrétar Jónsdóttur. Hann var elstur af sjö systkinum og ólst upp í fátækt. Brynjúlfur naut engrar skólagöngu fyrir utan að þegar hann var 17 ára var hann í hálfan mánuð hjá presti til að læra grunn í dönsku, reikningi og skrift. Sama ár fór hann á vetrarvertíð og var við útróðra á vetrum til þrítugs þrátt fyrir bága heilsu. Á vorin reri hann í Reykjavík og komst þar í kynni við ýmsa menntamenn sem útveguðu honum bækur, svo að hann gat lært dönsku og lesið sér til um málfræði, náttúrusögu, landafræði og margt annað sem hann hafði áhuga á.

Brynjúlfur hafði alla tíð verið heilsulítill en um þrítugt veiktist illa með tímanum þurfti hann að hætta allri erfiðisvinnu. Sjálfur kenndi hann um falli af hestbaki. Veikindin sjálf sá hann sem lán í óláni; þar sem hann mátti ekki stunda erfiðisvinnu fékk hann meiri tíma til að mennta sig eins og hann sagði sjálfur í ævisögu sinni: „Þá er veikindi mín voru að byrja og lengi síðan, áleit ég þau hina mestu ógæfu; en svo hefir guðleg forsjón hagað til, að þau urðu upphaf minna betri daga.“ Þegar Brynjúlfi batnaði hóf hann að kenna börnum á veturna til þess að sjá fyrir sér og fékk síðar launað starf hjá Fornleifafélaginu, en Sigurður Guðmundsson málari hafði vakið áhuga hans á fornleifum. Um leið hélt hann stöðugt áfram að lesa sér til og fræðast og tókst að verða vel læs á sænsku, þýsku og ensku auk dönskunnar.

Brynjólfur kvæntist ekki en eignaðist einn son, Dag Brynjúlfsson hreppstjóra í Gaulverjabæ.

Árið 1893 gerðist Brynjúlfur skráningarmaður fyrir Hið íslenzka fornleifafélag og birtust greinar og athugasemdir eftir hann í Árbók hins íslenzka fornleifafélags allt til ársins 1911. Þrátt fyrir heilsuleysi reið Brynjúlfur um landið í 16 sumur fyrir Fornleifafélagið og Forngripasafnið. Á ferðum sínum skráði hann lýsingar sögustaða og fornleifa og safnaði gripum fyrir Forngripsafnið.

Brynjúlfur skrifaði í þremur ritgerðum lýsingu á Þjórsárdal ásamt uppdráttum af nokkrum bæjarústum. Einungis tvær af þessum ritgerðum hafa varðveist en sú síðasta var skrifuð 1880 og kom út í Árbók fornleifafélagsins 1885.

Brynjúlfur safnaði þjóðsögum í Árnessýslu sem meðal annars birtust í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar. Einnig skráði hann Söguna af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum sem er héraðssaga Árnesinga á 19. öld og stundum talin yngsta Íslendingasagan .

Brynjúlfur var líka heimspekilega þenkjandi og gaf út ritið Saga hugsunar minnar um sjálfan mig og tilveruna 1912, tveimur árum áður en hann lést, en hann hafði lengi verið að vinna að þessu riti þar sem hann tekst á við hugmyndir sínar um heimspeki og trú.

Brynjúlfur lagði einnig stund á kveðskap og orti hann heimspekiljóð, söguljóð og tækifæriskvæði.

Síðustu ár ævi sinnar bjó Brynjúlfur á Eyrarbakka en hann fékk lungnabólgu vorið 1914 og lést 16. maí sama ár.

Repository

Immediate source of acquisition or transfer

Scope and content

Appraisal, destruction and scheduling

Accruals

System of arrangement

Conditions governing access

Conditions governing reproduction

Language of material

Script of material

Language and script notes

Physical characteristics and technical requirements

Finding aids

Existence and location of originals

Existence and location of copies

Related units of description

Related descriptions

Alternative identifier(s)

Subject access points

Place access points

Name access points

Description identifier

Institution identifier

Rules and/or conventions used

Status

Level of detail

Dates of creation revision deletion

Language(s)

Script(s)

Sources

Accession area

Related subjects

Related people and organizations

Related places