Brandur Tómasson, prestur á Ásum í Skaptártungu, f. 13. nóvember 1837, d. 19. júlí 1891. Foreldrar: Tómas Jónsson bóndi á Þóroddsstöðum í Hunavatnssýslu og Herdís Björnsdóttir. Maki: Guðrún Jónsdóttir (f. 1836). Börn: Hallfríður Brandsdóttir; Víglundur Jón Brandsson. Maki: Valgerður Jónsdóttir (f. 1842). Börn: Jón Brandsson, prestur[1]; Guðrún Brandsdóttir, Sigríður Guðný Benedikta Brandsdóttir, Tómas Jón Brandsson.
Útskrifaðist úr latínuskólanum 1858, frá prestaskólanum 1862. Prestur að Einholtum í Hornafirði 1862-1869, í Prestbakka í Strandasýslu 1869-1880, á Ásum í Skaptártungu 1880-1891. Brandur Tómasson var einn af stofnfélögum Kvöldfélagsins („Leikfélags Andans“).