Auðkenni
Tegund einingar
Leyfileg nafnaform
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
Saga
Bogi flutti ásamt fjölskyldu til Akureyrar er hann var 14 ára gamall og hóf sama ár störf hjá skóverksmiðjunni Iðunni. Þar starfaði hann í tæp 50 ár sem verkamaður og verkstjóri.
Bogi er þjóðþekktur fyrir störf sín að æskulýðsmálum. Hann starfaði í 54 ár við sumarbúðirnar að Ástjörn í Kelduhverfi og þar af í 40 ár sem forstöðumaður. Hann starfaði í um 25 ár við ylfingastarf hjá skátahreyfingunni á Akureyri. Bogi endaði starfsferilinn sem gangavörður í Gagnfræðaskóla Akureyrar, þar sem hann var innan handar 450 börnum og unglingum. Í 26 ár heimsótti hann nánast vikulega fanga í fangelsinu á Akureyri og ræddi við þá um andleg mál. Þá var Bogi virkur í Gideonhreyfingunni til áratuga og var mjög annt um það starf. Hann starfaði og að fjölmörgum öðrum sjálfboðaliðasörfum, s.s. sunnudagaskólum fyrir börn og afþreyingu fyrir heimilisfasta á dvalarheimilum aldraðra.
Bogi hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf að æskulýðsmálum. Árið 1990 var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu.
Heimild: http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1210535/
Staðir
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Stjórnsvæði
Lýsinganúmer
Kennimark stofnunar
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Skráningarstaða
Skráningardagsetning
Tungumál
- íslenska